|
Brauhaus Lüdde bruggar og býður upp á þrjár bjórtegundir sem í raun
eru aðeins tvær því Lüdde Braunbier er ekki bjór í
mínum bókum. Hér erum við að tala um ægilega sætan mjöð
með aðeins 1% alkóhóli. Minnir helst á okkar íslenska
Egils Malt nema að humlar eru enn meira fjarverandi.
Lítil fylling og léttur í munn og flatur með öllu.
Töluvert vatnskenndur og ögn reyktur. Frekar vondur
drykkur í alla staði og ómögulegt að klára úr glasinu.
Vei þeim sem drekkur þennan drykk!!! |