|
Faro
er blanda af gömlum og ferskum Lambic og svo er bætt
út í kandís í seinni gerjun. Útkoman er afar
glæsilegur og sérstaklega ferskur bjór. Þetta
er bjór sem maður getur auðveldlega þambað.
Fallegur í glasi, tær með fallegum gasbólum líkt og
freyðivín. Sætur en dálítið súr keimur í nefi.
Í munni er hann ögn þurr á tungu en þó sætur með
þægilegum keim. Í eftirbragði má svo finna
sætuna frá kandísnum. Nammi namm. Þessi
bjór er alveg tilvalinn sem fordrykkur á meðan beðið
er eftir aðalréttnum. Flottur í háu
freyðivínsglasi. Dömurnar kunna vel við
þennan. Þess má þó geta að það er nokkuð
erfitt að nálgast þennan bjórstíl í dag þar sem hann
er í útrýmingarhættu eins og flestur lambic bjór.
Það er von mín að svona perla hverfi ekki alveg af
sjónarsviðinu, slíkt væri hræðilegt. |