web log free Liefmans Kriek
     

HEIM

  bjórdómar
fréttnæmt
  pistlar ofl
 
  fróðleikur
 
 
 

Liefmans KriekBier

stíll :

Lambic (villibjór)

brugghús :

Liefmans Breweries

land :

Belgía

alkóhól :

6,0%

fyrst smakkað :

9.7.2002

smökkunarstaður :

London

Hér erum við með eins ekta belgískan ávaxtabjór og hann gerist. Liefmans er nefnilega eitt fremsta brugghús heims í gerð ávaxtabjóra.  Kriek þýðir kirsuber og er bjórinn gerjaður með ferskum kirsuberjum.  Í grunnin er um villibjór eða Lambic að ræða sem svo er bættur kirsuberjum.  Venja er að ávaxtabjórar eru léttir í áfengi en þessi er með þeim sterkari held ég.  Unnið til margra verðlauna og þar á meðal besti kriek í heimi.  Fallegur í glasi með ögn bleika froðu og freyðir vel, minnir helst á Lambrusco í glasi. Ilmar eins og kirsuber.  Á tungu er hann léttur og spriklandi, alls ekki væminn, kirsuber koma vel fram samt.  Hann er dálítið þurr á tungu og súr.  Stutt eftirbragð sem minnir ögn á rauðvín.  Já gríðarlega spennandi stíll sem þó er ekki allra.  Hentar vel sem fordrykkur á heitum sumardegi.