|
Stundum
er talað um að ávaxtabjór sé konubjor, vissulega
skil ég hvað átt er við hins vegar viðurkenni ég að
mér finnast ávaxtabjórar oft ansi góðir. Varla neitt
annað betra en ískaldur ferskur ávaxtabjór á heitum
sumardegi einn og sér eða sem glæsilegur fordrykkur.
Þessir bjórar eru stundum of væmnir hins vegar og þá
er ekki gaman. Liefmans er hins vegar þekkt
fyrir mjög vandaðan ávaxtabjór. Í Fruitesse er
notuð ýmis ber, jarðaber, kirsuber, hindber ofl.
Bjórinn er látinn þroskast í 18 mánuði á ferskum
kirsuberjum í kjöllurum Liefmans. Bjórnn Dísætur í
nefi með ávöxtum og þá helst jarðaberjum og ögn
sítrus. I munni gríðarlega léttur og ferskur.
Mikið gos, slatti af kirsuberjum og jarðaberjum.
Engir humlar í bragði en ögn sætt malt. Svo er
snefill af súrum keim. Létt fylling og stutt
eftirbragð. Virkilega ljúffengur bjór sem
maður getur ekki drukkið of mikið af. Ef tala
á um konubjór þá er þetta mjög gott dæmi. |