|
Hér
erum við að tala um frábæra bjórperlu frá Belgíu.
Í grunninn er notaður svo kallaður
Goudenband brún-öl sem í sjálfu sér er
sjálfstæður bjórstíll, Oud Bruin.
Frambozen þýðir hindber en hindberjum er einmitt
bætt út í gerjunina til að kalla fram einstakan og
frískandi bjór. Glæsilegur í glasi og með fína
froðu. Í nefi er brenndur sykur og fullt af
hindberjum. Í munni er hann afar léttur og
hressandi með kitlandi gos og ögn súr og þurr.
Bjórinn er því alls ekki væmin eins og ætla mætti.
Eftirbragð er pínu súrt en þægilegt. Það
skemmtilega við þennan bjór er svo umbúðirnar en
hverri flösku er pakkað inn í merktan kreppappír sem
gefur bjórnum ansi skemmtilegt og dularfullt
yfirbragð. Menn verða að prófa þennan. |