|
Liefmans
Abdis er nýr bjór frá brugghúsinu sem betur er þekkt
fyrir bjóra byggðan á lambic grunni. Abdis er
einn af þremur klausturbjórum frá Liefmans og er
þetta í held fín lína. Þessi er þó sístur af
þeim þrem. Í nefi er lítil lykt með þurkuðum ávöxtum.
Hann er léttur í munn með litla fyllingur en vel
kolsýrður. Látlaust bragð með léttu
frútti og sætu malti engu að síður má finna ögn
þurrkaða ávexti á borð við rúsínur. Í rauninni er þetta
þó
furðulega daufur og einfaldur bjór miðað við bræður
hans tipelinn og
blondinn.
Allt í lagi að smakka og allt það en maður kaupir
frekar
Westmalle dubbel eða bara gamla góða
Leffe
brune. |