web log free Leppalúði
     

HEIM

  bjórdómar
fréttnæmt
  pistlar ofl
 
  fróðleikur
 
 
 

Leppalúði jólabjór

stíll : Belgískur jólabjór
brugghús : ?
land : Belgía
alkóhól : 7.6 %
fyrst smakkað : 19.11.2011
smökkunarstaður : Sumarbústaður
Þessi er dálítið sérkennilegur, um er að ræða belgískan jólabjór sem bruggaður er fyrir íslenskan markað og fær það skemmtilega nafn Leppalúði.  Vonum að Gríla komi á næsta ári.  Bjórinn er af allt öðrum toga en það sem við eigum að venjast heima á Íslandi úr röðum jólabjóra.  Þetta er fallegur bjór með mikla flotta froðu. Í nefi eru sætir tónar og mandarínur sem er nú jólalegt.  Í  munni er mikið bragð, ávextir af suðrænum toga, lítil beiskja og sætur brenndur sykur.  Það er eitthvað skrítið aukabragð sem ég átta mig ekki alveg á en það truflar mig dálítið, fúkkabragð? Fylling er mjög góð í þessum og eftirbragð notalegt með þægilegri sætu.  Áfengið er ekki merkjanlegt í bragði.  Já virkilega fínn bjór og góð tilbreyting frá hinum annars látlausu íslensku jólalagerum.