web log free Leffe Triple
     

HEIM

  bjórdómar
fréttnæmt
  pistlar ofl
 
  fróðleikur
 
 
 

Leffe Triple

stíll : Belgískur Tripel
brugghús : InBev Belgium
land : Belgía
alkóhól : 8.4 %
fyrst smakkað : 19.7.2002
smökkunarstaður : Árósar - Danmörk

Leffe Triple er klausturbjór úr smiðju Interbrew bruggsamsteypunnar og er keimlíkur hinum gullna Leffe Blonde. Tripelinn er þó mun bragðsterkari og vínlegri og er fínt verkefni fyrir flest skilningarvitin. Snarpir humlar og spriklandi gosið lífga upp  upp á bjórinn og mikið ávaxtabragð er einnig áberandi. Alkóhólið kemur líka við sögu í formi þægilegs hita. Eins og hinir Leffe karlarnir þá er þetta fallegur bjór sem gott er að hugga sig yfir t.d. í sumarbústaðnum við arineldinn á köldu vetrarkvöldi. Ef ég á þó að bera þessa kalla saman þá verð ég að segja að Leffe Blonde er bara betri bjór. Þetta er þó gott klaustur öl og mæli ég með að menn prófi þetta ef