|
Radieuse
þýðir geislabaugur og á það líklega að vera vísbending um að
hér sé um að ræða heilagan bjór frá sjálfum skaparanum. Þennan
karl þarf ég reyndar að smakka aftur betur seinna því ég er
hræddur um að ég hafi ekki fengið allt út úr honum sem skildi.
Þetta er annars gullfallegur bjór með dökkan koparblæ og þykka
þétta froðu. Í nefi má finna mikla ávexti og jafnvel kirsuber.
Í munni er bjórinn gosmikill og fyrirferðamikill með öflugt
bragð og er þessi sá bragðmesti af þeim Leffe-bræðrum.
Ávextir, ber, humlar og ger og svo fínt langt eftirbragð með
ljúfum þægilegum humlum. Góður kósíbjór!!! |