|
Leffe
9 er nýr meðlimur Leffe fjölskydunnar sem hingað til hefur
talið 4 tegundir, Leffe Blond, Leffe Bruin, Leffe
Triple og Leffe Radious. Allt
eru þetta miklir og góðir bjórar hver með sinn karakter og
stíl. Leffe 9 er því kærkomin viðbót. Þetta er
fallegur bjór með koparblæ í glasi og létta netta froðu.
Í nefi kryddaður, frúttaður en einnig ögn alkóhól. Í
munni kraftmikill með gríðarlega ríkjandi "leffe keim".
Já ég veit ekki hvað skal segja en mér finnst ekkert nýtt í
þessum karli, hann bragðast í raun eins og
Leffe Blond
nema hvað að alkóhólið er ögn meira áberandi og hann er ekki
eins sætur á tungu. Fylling er þó góð og eftirbragð
voða notalegt! Já leiðinlegt er að segja það en sem tripel
þá er þessi karl ekki að standa sig. |