web log free Lagunitas Imperial Stout
     

HEIM

  bjórdómar
fréttnæmt
  pistlar ofl
 
  fróðleikur
 
 
 

Lagunitas Imperial Stout

stíll :

Imperial Stout

brugghús :

Lagunitas Brewing Company

land :

Bandaríkin

alkóhól :

10%

fyrst smakkað :

28.10.2011

smökkunarstaður :

Reykjavík Ísland

Þessi er ofsalega góður, alveg eins og ég vil hafa Imperial Stout. Kolsvartur í glasi með netta froðu.  Í nefi fullt af skemmtilegum hlutum, súkkulaði, vanilla, humlar og ögn kaffi.  Í munni er um þrusu karl að ræða.  Mikill þéttleiki og fylling.  Tungutryllir með ýmsum dásamlegum tónum.  Bar þar hæst humlar en þó mikil sæta, súkkulaði, vanilla og espresso.  Í upphafi finnur maður apotekaralakkrís sem svo hverfur þegar bjórinn hitnar aðeins. Það sætir svo furðu hve vínandinn kemur lítið fram í bragði.  10% hvorki meira né minna finnast alls ekki.  Dásamlegt.  Þetta ameríska brugghús veit nákvæmlega hvernig á að gera þetta.  Sáttur!