|
Ég
kannast vel við La Trappe bjórinn, þennan eina hollenska
Trappist bjór. Ég verð þó að viðurkenna að ég vissi ekki
að þeir gerðu hveitibjór einnig. Um er að ræða
hveitibjór í anda hinna belgísku hveitibjóra á borð við
Hoegaarden. Hann er mattur og ljós, nánast hvítur í
glasi með mikla fína froðu. Í munni er þetta alveg
ljómandi hveitibjór, kóriander snefill, appelsínubörkur og
mildir humlar. Létt fylling og gríðarlega svalandi.
Já hér er kominn fínn staðgengill Hoegaarden á Íslandi en hann
fæst ekki hér lengur eins og flestum er kunnugt. Hvernig
er svo best að drekka þennan bjór? Jú ískaldan með góðum
sallatrétt, sushi eða bara einan og sér. Passar einnig
vel með mildum ostum. Ég hvet fólk til að prófa þennan. |