web log free La Trappe Quadrupel
     

HEIM

  bjórdómar
fréttnæmt
  pistlar ofl
 
fróðleikur
 
 
 

La Trappe Quadrupel

stíll : Trappist / Munkaöl - Quadrupel
brugghús : De Koningshoeven
land : Holland
alkóhól : 10.0%
fyrst smakkað : 1.11.2002
smökkunarstaður : Somewhere!

Þetta er einn af þessum stóru körlum sem menn verða að prófa.  Þetta er kröftugur og mikill drykkur.   Í fallegu glasi sínu er hann fagurbrúnn með þéttri "bage" froðu.  Í nefi má finna sætan keim með karamellu og ögn hunangi eða malti ummmmmmmm.   Í munni er þetta afar mjúkur bjór og að sama skapi fullur.  Þessi massífi bjór pakkar fullum 10% vínanda sem stígur manni beint til höfuðs án þess þó að fikta of mikið í bragðlaukum.  Maður verður alkóhólsins þó var og sér í lagi þegar líður á bjórinn.  Humlar og malt virðast ekki ágengir en bjórinn er þó rammari en ætla mætti af lyktinni.  Quadrupel stíllinn er afbrigði Trappist bjóra og falla sérstaklega sterkir Trappist eða klausturbjórar í þennan flokk.  Gríðarlega vandaður bjór.