|
Áður
fyrr voru Quadrupel bjórarnir frá Koningshoeven stundum látnir
þroskast í viðartunnum af ýmsum toga, allt upp í 12 mánuði.
Það fór svo eftir hvaða viður tunnurnar voru gerðar úr hvernig
áhrif þær höfðu á bragð bjórsins. Þessi hefð hefur í
gegnum árana rás dottið uppfyrir en nú árið 2010 ákváðu þeir
hjá Koningshoeven að láta aftur á þetta reyna og nota
eikartunnu til verksins. Bjór þessi geymist svo
mjög vel og hentar því til margra ára geymsu á flöskum.
Það er alltaf gaman að sjá hvernig slíkur bjór breytist með
tímanum. Bjórinn er dökkur í glasi með ágætis froðuhaus.
Það er mikill eikarkeimur í nefi og mandarína? Í munni
er góð fylling og mjög flókin sopi. Mildur, sætir tónar
en það vottar einnig fyrir vínandanum. Einnig má finna
ristað dökkt malt, vanillu og eik. |