web log free La Trappe Isidor
     

HEIM

  bjórdómar
fréttnæmt
  pistlar ofl
 
fróðleikur
 
 
 

La Trappe Isid'or

stíll : Trappist / Munkaöl
brugghús : De Koningshoeven
land : Holland
alkóhól : 7.5%
fyrst smakkað : 6.9.2011
smökkunarstaður : Reykjavík Ísland.

La Trappe Isid'or, ekki beint mest lýsandi nafn á bjór, skýringin er hins vegar að bjór þessi er bruggaður nú (2009) 125 árum eftir að fyrsti La Trappe bjórinn leit dagsins ljós innan veggja B.V.M. Koningshoeven.  Það var hinn ágæti guðsmaður Isidorus Laaber sem ákvað að láta á þetta reyna.  Bjórinn nú er því bruggaður í takmörkuðu upplagi til að fagna þessum tímamótum og minnast karlsins.  Um er að ræða fallegan klausturbjór í anda dubbels.  Hann er mildur en í senn bragðmikill.  Þægilegt gos, ljúfir malttónar, fullt af sætum þurrkuðum ávöxtum, malti og karamellu.  Eftirbragð er sætt og langt.  Fylling yfir meðallagi.  Já í allt afar þægilegur bjór í anda La Trappe línunnar.  Ekkert sérstakt á ferð en þó virkilega góður bjór.  Takk fyrir mig

 

Gjöf frá góðum vinum, Valla, Björg og Abba við hátíðlegt tækifæri!