|

Þessi flotti karl fæst á mjög góðu verði í Vínbúðinni. Um er
að ræða flottan bock frá hinu hollenska Trappist brugghúsi De
Koningshoeven. Brugghúsið er líklega þekktara fyrir
bruggun á Trappist bjór í anda belgísku klausturbjóranna. Bjór
þessi er fallegur í glasi með myndarlega froðu. Mikil ljúf
lykt er af honum þar sem greina má sætt malt í aðalhlutverki
ásamt þurkuðum ávöxtum. Í munni er mikið að gerast,
heilmikið ristað malt og nokkur sæta. Humlar eru fjarverandi
nánast með öllu. Sopinn liggur vel, nokkuð góð fylling
er í honum og hann endist lengi með ljúfu möltuðu eftirbragði.
Fyrir þá sem kunna vel við bock stílinn þá er þetta góð
viðbót. Hins vegar er ég persónulega lítið fyrir þennan
stíl og kemur það því fram í einkunn hér að neðan. |