web log free La Trappe Blond
     

HEIM

  bjórdómar
fréttnæmt
  pistlar ofl
 
fróðleikur
 
 
 

La Trappe Blond

stíll : Trappist / Munkaöl
brugghús : De Koningshoeven
land : Holland
alkóhól : 6.5%
fyrst smakkað : 12.10..2002
smökkunarstaður : Somewhere! London ef ég man rétt!

Þetta er einn af þremur La Trappe bjórum sem ég hef smakkað.  Þessi er ferskur í nefi með málmblæ og ögn frúttaður.  Þetta öl er bragðmikið með sterkum humlum sem kitla laukana og gosríkur er hann með ágætum.  Ávaxtakeimurinn sem maður finnur í nefi er nánast með öllu fjarverandi í munni og því tapast hinn hefðbundni ölfílingur og hann nálgast því lagerinn að nokkru leiti.  Fínt eftirbragð með humlum í fínu jafnvægi við maltið.  Skemmilegt hve maður verður þess var hvað bjórinn er frábrugðin frændum hans frá Belgíu....það er bara ekki þetta sama ölyfirbragð yfir honum enda annað ger í spilinu.  Samt ljúft öl sem óhætt er að mæla með.  ATH þann 7.10.2005 hefur La Trappe bjórinn aftur fengið leyfi til að bera hið ósvikna Trappist merki.