HEIM

  bjórdómar
fréttnæmt
  pistlar ofl
 
gamla bjórbók
 
 
 

La Choulette De Noél

stíll : Biére de garde
brugghús : Brasserie La Choulette
land : Frakkland
alkóhól : 7.0%
fyrst smakkað : 19.11.2004
smökkunarstaður : Århus DK

Í nefi er sætur möndlukeimur í bland við alkóhól og hnetur.  Í munni er þetta léttur kall með meðal fyllingu og ferskum humlum.   Auk humla má greina hnetukeim og ögn frútt, sopinn endar svo með snefil af "graskeim"og smá alkóhóli þegar líður á bjórinn.  Með graskeim á ég við eitthvað sem minnir á bragðið af fersku grænu grasi eða heyi sem japlað er á.   Eftirbragð er svo afar stutt og lítt gómsætt.   Að mínu mati er þetta sæmilegur bjór sem líklega er góður með krydduðum mat en jólastemningin er ekki áberandi nema hvað að bjórinn ber afar fallegan jólarauðan lit.  Í raun svipar bjórnum mjög til La Choulette Blonde sem er betri ef eitthvað er.  Ég mæli ekki með þessum sem jólabjór, ekki nema bara fyrir þær sakir að hér er á ferð biére de garde sem er dálítið spes bjórstíll.