HEIM

  bjórdómar
fréttnæmt
  pistlar ofl
 
  fróðleikur
 
 
 

La Chouffe

stíll : Belgískt sterköl
brugghús : Brasserie dAchouffe
land : Belgía
alkóhól : 8.0%
fyrst smakkað : október 2003 - sjá gamla dóminn hér!
smökkunarstaður : Århus
Hvernig fara menn eiginlega að þessu?  Ég sit hérna hálf gáttaður yfir því hvernig hægt sé að sjóða saman annan eins undramjöð og La Chouffe svo sannarlega er.  Í þessari litlu flösku sem lætur ekki mikið yfir sér er að finna líklega það næsta sem maður kemst að tilgangi lífsins.  Já ég segi það bara og þori alveg að endurtaka það.  Þunglyndir verða kátir og kátir manískir þegar tappinn fíkur af þessum kalli.  Nánast dansandi upp úr flöskunni mætir manni ögrandi sætur  og hressandi ilmurinn sem nánast vanhelgar bragðlaukana.  Í munni liggur sopinn svo vel að það fer um mann af kæti.  Fullur er hann með eindæmum og í bragði má finna sæta ávexti á borð við perur eða apríkósur sem og kandís og svo perubrjóstsykur.  Já fullkomin hamingja hér á ferð!