web log free Lava
     

HEIM

  bjórdómar
fréttnæmt
  pistlar ofl
 
  fróðleikur
 
 
 

Ölvisholt Brugghús, Lava Stout

stíll :

Imperial Stout

brugghús :

Ölvisholt Brugghús

land :

Ísland

alkóhól :

9.6%

fyrst smakkað :

30.6.2009

smökkunarstaður :

Árósar

Lava er enn eitt meistaraverk Ölvisholts, um er að ræða alvöru kröftugan imperial stout.  Hann er fallegur í glasi, kolsvartur með fína brúna froðu.  Í nefi er dálítið sætur keimur, ögn reyktur en alls ekki neitt til að hafa áhyggjur af og svo má finna súkkulaði.  Í munni er hann mjúkur með mikinn skrokk.  Lava hefur mikinn karakter og er bragðmikill með sætum undirtón í bland við reykt ristað malt og súkkulaði.  Meðal beiskja.  Vínandinn kemur lítið sem ekkert í ljós nema aðeins þegar líður á bjórinn.  Gríðarlega vel lukkaður imperial stout hjá Ölvisholti.  Upplifunin endar svo með dásamlegu eftirbragði með sætum maltkeim og þægilegum reyk.  Þessi bjór kallar á eitthvað grillmeti og kannski hangikjöt eða eitthvað annað reykt.  Svo eru sætir eftirréttir eins og sniðnir fyrir imperial stout.  Þessi kom gríðarlega á óvart.