web log free Klovn Øl
     

HEIM

  bjórdómar
fréttnæmt
  pistlar ofl
 
  fróðleikur
 
 
 

Klovn Øl

stíll :

bragðbætt enskt öl

brugghús :

Ølfabrikken

land :

Danmörk

alkóhól :

4.0 %

fyrst smakkað :

13.09.2009

smökkunarstaður :

Árósar

Það þekkja kannski margir nú orðið hina vinsælu dönsku grínþætti um hinn seinheppna Frank Hvam og félaga hans Casper.  Að mínu mati eru Klovn þættirnir eitt það besta sem komið hefur frá frændum okkar Dönum þegar talað er um sjónvarpsefni.  Í tilefni þess að nú eru komnir út 6 seríur af Klovn hefur þessi bjór verið bruggaður þeim til heiðurs.  Um er að ræða léttan bjór brugguðum með vanillu, hyldebloms og appelsínuberki.  Ég verð að viðurkenna að þessi bjór heillaði mig lítið þegar ég ákvað að kaupa hann en viti menn, þetta er bara hinn ágætasti bjór.  Reyndar fer lítið fyrir vanillu en léttbeiska appelsínu má finna í bakgrunni og hyldeblomst gerir þennan bjór hressandi og lifandi.  Í nefi má einnig finna hyldebloms ásamt humlum.  Svo er meðal fylling og ágætis mýkt í honum og í heildina séð ljómadi hressandi lager.  Þennan gæti ég alveg drukkið yfir Klovn