web log free Kirin Beer
     

HEIM

  bjórdómar
fréttnæmt
  pistlar ofl
 
  fróðleikur
 
 
 

Kirin Beer Premium Lager

stíll : Lager
brugghús : Kirin Brewery Company
land : Japan
alkóhól : 5.0 %
fyrst smakkað : 7.7.2002
smökkunarstaður : Gili Gulu í London

Kirin er einhverskonar goðsagnar kvikindi í Japan sem ef ég man rétt boðar lukku þar sem það fer um.  Þetta er blanda af dreka og hirti.  Ég smakkaði þennan bjór fyrst á frábærum sushi stað í London Gili Gulu á meðan ég úðaði í mig sushi í fyrsta skipti á ævinni.  Það er svo sem ekki skrítið að þessi bjór varð fyrir valinu því þessi bjór smellpassar við sushi.  Í hann er m.a. notuð hrísgrjón sem gefa bjórnum virkilega góða fyllingu og notalegheit og þar sem sushi er að miklu leiti gert úr hrísgrjónum þá er ekki að undra að þetta er góður félagi.  Hann er fallegur í glasi með myndarlega fallega froðu.  Í nefi er hann grösugur með humalkeim og korni.  Í munni er fylling virkilega góð og mikil.  Hann er mjúkur á tungu og beiskjan í meðallagi.  Ef þú ert staddur í London þá skaltu þefa uppi GiliGulu og fá þér Kirin.