|
Óli kemur
11.9.2008 - Já Jói er nýkominn og farinn
aftur. Það var gaman að fá karlinn aftur á danska grund. Nú er svo
Óli væntanlegur en sá skratti kemur 25.9. og verður til 28.9. Það verður
því tekið dálítið á því 26.9 þar sem Óli þarf að komast yfir ansi marga nýja
spennandi bjóra. En eins og margur veit er Óli einn virkasti meðlimur
Kidda í bjórsmökkun. |
|
--------------------------------------------------------------------------------------------------------------- |
|
Með
betri lagerbjórum
11.9.2008 - Ég smakkaði um daginn
frábæran bjór frá brugghúsinu
Skovlyst sem er afskaplega spennandi örbrugghús á
Sjálandi. Bjórinn heitir
Skovlyst
Birke Bryg og skipar sér í raðir bestu lagerbjóra sem Bjórbókin hefur
smakkað. Nú fæst þessi karl í Bilka en einnig á krana á SigFreds. Þeir
gera einnig besta
IPA í
heimi. |
|
--------------------------------------------------------------------------------------------------------------- |
|
Nørrebro
Bryghus á Íslandi
12.6.2008 - Ekki alveg en nálægt því, já
því í júlí mun koma á markað nýr bjór frá nýju brugghúsi sem kallast Ölgerð
Reykjavíkur. Bjórinn mun heita Gullfoss. Það sem er það besta við
þetta er að bruggmeistarinn þeirra er enginn annar en Anders Kissmeyer sem er
heilinn á bak við hið stórbrotna brugghús
Nørrebro Bryghus
. Já þetta eru magnaðar fréttir. Ég hlakka mikið til að smakka og ég
veit að Eiki verður spenntur! |
|
--------------------------------------------------------------------------------------------------------------- |
|
Nýr á flösku
6.5.2008 - Nú er heldur betur komið sumar
því hið stórbrotna brugghús
Nørrebro Bryghus hefur tappað
nýjum bjór á flöskur. Reyndar ekki um nýjan bjór að ræða en sem fyrr segir
nýr á flöskum. Stuykman Witt
heitir karlinn og er svalandi hveitibjór af
belgískum toga. Kauði fæst nú í t.d. Bilka, líklega víðar. Gleðilegt
sumar! |
|
--------------------------------------------------------------------------------------------------------------- |
|
Vel
lukkað smakkvöld
4.5.2008 - Hið ameríska smakkkvöld Kidda
gekk með eindæmum vel. Smakkaðir voru 5 bjórar og spilað póker með.
Mjög gaman. Hér má sjá ögn nánar um þennan viðburð og jafnvel detta inn
myndir hérna innan tíðar! -Nána!
|
|
--------------------------------------------------------------------------------------------------------------- |
|
Íslenskur
STOUT!
28.4.2008 - Já nú eru hlutirnir farnir að
rúlla á klakanum. Nú kemur nefnilega á markað þann 2. maí fyrsti íslenski
státinn.
Það er Vífilfell sem sér um að brugga herlegheitin. Þetta eru stórar
fréttir fyrir bjórunnendur á Íslandi. Nú er það nánast skylda okkar
meðlima Kidda að hópast í 'ATVR 2. maí og prófa þennan spennandi drykk! |
|
--------------------------------------------------------------------------------------------------------------- |
|
Kiddi
frægur á Íslandi!
26.4.2008 - Já núna þekkir hvert íslenska
mannsbarn hið framúrskarandi bjórmenningarfélag Kidda því um daginn var
Bjórbókin valin vefsíða vikunnar í Morgunblaðinu okkar íslenska. Í
meðfylgjandi grein fær svo Kiddi dálitla athygli. Já þetta er allt að
gerast.. Hér má
lesa greinina! |
|
--------------------------------------------------------------------------------------------------------------- |
|
Nørrebro
Påske á 5 kr!
2.4.2008 - Ég bara verð að nefna þetta
við ykkur, fyrir þá sem staddir eru í DK. Nørrebro Bryghus
er nánast að gefa bjórinn sinn í dag, já því þeir vilja losna við
páskabjórinn úr hillunum og selja hann því á 5 kr danskar. Hægt er að
nálgast þetta tilboð t.d. í Føtex og Kvikly. Um að
gera að drífa sig strax í dag! HEHEH APRÍL GABB! |
|
--------------------------------------------------------------------------------------------------------------- |
Besti íslenski bjórinn.
14.3.2008 - Ég vildi bara benda hinum
íslenska arm Kidda á að
Skjálfti hinn
nýji íslenski "sælkerabjór" er bara ansi fínn karl. Já miðað við að vera
lager og íslenskur þá er þetta eiginlega bara algjör snilld. Léttur og
mildur en þó með smá karakter og humla.
Nánar |
|
--------------------------------------------------------------------------------------------------------------- |
Skjálftinn er kominn.
1.3.2008 - Já á sjálfum bjórdeginum kemur
nýr bjór á markað á íslandi. Bjór þessi er skjálfti heitir ku vera ansi
skemmtilegur bjór og er í raun uppseldur um þessar mundir. Vonandi kemur
nýr skammtur innan tíðar þannig að íslenskir Kiddar geti bragðað á sem fyrst.
Nánar |
|
--------------------------------------------------------------------------------------------------------------- |
|
Kiddi í Köben.
1.3.2008 - Kiddi skellti sér til
Köben í gær eins og flestir vita
til að taka út hið stórkostlega brugghús
Nørrebro Brughus.
Ferðin lukkaðist bara ansi vel, þrátt fyrir eina stöðumælasekt eða svo.
Nánari upplýsingar síðar. |
|
--------------------------------------------------------------------------------------------------------------- |
Kings County Brown.
29.2.2008 - Náði loks í skottið á þessum
nýja flöskubjór frá
Nørrebro Brughus.
Karlinn fæst núna í Kvikly við Viborgvej ásamt fleirum góðum. Þetta er
bara alveg ljómandi góður bjór bruggaður eftir bjórstíl sem kallast Amerískur
Brown Ale.
Nánar |
|
--------------------------------------------------------------------------------------------------------------- |
Kiddi
does Köben.
Jamms þann 29.2.2008 munu nokkrir vel
valdir Kiddar skella sér í vísindaferð til Köben og taka út hið undurfagra og
dásamlega brugghús
Nørrebro Brughus
sem einfaldlega er eitt besta brugghús danmerkur. Ferðinni verður gerð nánari
skil síðar. Nánar |
|
--------------------------------------------------------------------------------------------------------------- |
10.2.08
Bjórfestival.
Já núna í Maí þá mun verða haldin
bjórhátíð hér í Árósum. Þar verða ýmis dönsk örbrugghús með bjór sinn sem
og innfluttur bjór. Bara bjór og almenn gleði og Kiddinn á staðnum?
Hvurnig væri það nú?
Nánar |
|
--------------------------------------------------------------------------------------------------------------- |
01.2.08
Þorra Kaldi.
Eitthvað fyrir hinn íslenska anga Kidda.
Bruggsmiðjan á
Árskógssandi hefur bruggað bjór í tilefni Þorrans sem senn gengur í garð.
Þorra Kaldi ku vera hinn ágætasti pilsner með örðuvísi blæ. Sjálfur hef ég
reyndar ekki smakkað karlinn enda staddur í DK. En ég hvet Kidda á Íslandi
til að smakka kauða og miðla svo reynslu sinni. |
|
--------------------------------------------------------------------------------------------------------------- |
30.1.08
Porterinn frá Nørrebro fundinn.
Já nú loksins
eftir dálitla leit tókst mér að hafa uppá þessum "nýja" flöskubjór frá þeim
snillingum í
Nørrebro Bryghus. Bjórinn heitir
Skärgaards
Porter og fæst í Løvbjerg eða hvað hún nú
heitir þessi verslun. Ég hvet Kidda sem og aðra og kannski sér í lagi Abba
og Vigfús að tékka á honum. |
|
--------------------------------------------------------------------------------------------------------------- |
Óli
og Freysi skoða GB brugghúsið.
Í tilefni þess að nú líður senn að því að fyrsti íslenski "GB" bjórinn
komi á markað á klakanum ákvað Bjórbókin, ásamt einum virkasta meðlim
Bjórmenningarfélags Kidda um þessar mundir, Óla Helga að kanna nánar
GB línuna . Smakkið fór fram 24.01.2008.
Meira um þetta!. |
|
--------------------------------------------------------------------------------------------------------------- |
Nørrebro Bryghus
til Århus.
Já þið lásuð rétt,
þetta stórkostlega
brugghús hefur stór plön um að opna útibú í Árósum sem er jú höfuðstaður
Bjórmenningarfélags Kidda. Þetta frábæra brugghús skapar bjór eins og hann
gerist bestur og ekkert lítið af honum því bjórlisti þeirra telur hátt í 15
mism. tegundir. Stórkostleg tíðindi!
Nánar um brugghúsið. |
|
--------------------------------------------------------------------------------------------------------------- |
Jól
hjá Kiddanum okkar.
Já jólakiddi árið 2007 var haldinn núna
um helgina á Freysastöðum. Þetta var sögulegur Kiddi því aldrei hafa eins
fáir Kiddar mætt (vorum 3) og svo buðum við konu með í fyrsta sinn. Já
Sigrún fékk að fljóta með og reyndar nágranni okkar Bjarne. Smakkaðir voru
5 bjórar að þessu sinni og allir voru þeir með eindæmum ljúffengir.
Nánar |
|
--------------------------------------------------------------------------------------------------------------- |
|
Kiddi komin á spjöld sögunnar.
Jæja loksins kom að því, Kiddi er kominn
á blað. 100 bjórar eru skráðir á gullplatta á vegg bjórbúllunnar
Øl Molevitten. Aldrei aftur verður efast um getu
Kidda í bjórmálum, nei 100 mismunandi bjórar á örfáum dögum. Það verður
eiginlega að halda smá Kidda kvöld til að fagna þessum áfanga e'ða hva'ð?
Sjáum til hvað gerist.
Nánar |
|
--------------------------------------------------------------------------------------------------------------- |
Gott
úrval bjórglasa.
Ég vildi bara láta menn vita að í Kvikly
hérna við Viborgvej má nú finna nokkuð gott glasaúrval. Þar má m.a. nefna
stóra Hoegaarden glasið, Leffe glös, St Feuillien, Westmalle, Grottenbier og svo
ýmis önnur m.a. frá eitthvað af þessum dönsku brugghúsum svo sem Brockhouse. |
|
--------------------------------------------------------------------------------------------------------------- |
|
Ølfestival í
Aarhus Bryghus? Nú í þessari
viku (festuge) verður haldin bjórhátíð í einu af brugghúsum bæjarins Aarhus
Bryghus sem sumir
Kiddar þekkja nú orðið vel . Mér datt í hug hvort einhver áhugi væri
meðal Kidda að skella sér á þessa hátí'ð t.d. næsta föstudag eða laugardag?
Það kostar litlar 75 kr aðgangurinn og svo eitthvað aukalega fyrir hvert smakk
en þarna mun víst vera bjór til smökkunar frá öllum helstu örbrugghúsum
svæðisins sem og innfluttur bjór . Svar óskast via email.
Nánar |
|
--------------------------------------------------------------------------------------------------------------- |
Kiddi
í borg óttans! Kiddi brá
undir sig fæti núna föstudaginn 31. maí 2007 og kíkti til Álaborgar, borg óttans
þar sem menn og gamlar konur eru stungnar niður við hvert tækifæri.
Markmið ferðarinnar var að skoða hinn langþráða bar "The Warf" sem lumir á 26
bjórum á krana og einhvern slatta á tunnum "kask ale". 5 Kiddar fóru og
allir komu þeir aftur með bros á vör og sumir meira brosandi en aðrir.
Nánar |
|
--------------------------------------------------------------------------------------------------------------- |
Rauður snýr
aftur! Það var eitt sinn til
bjór frá Tuborg sem bar rauðan miða. Bjór þessi þótti greinilega góður á
sínum tíma því þegar hann hvarf af markaði fóru Danir að skæla og þótti að sér
vegið. Carsberg hefur því ákveðið að setja rauða Tubbann aftur á markað.
Hér er hann nú kominn og ég verð að segja hann olli mér persónulega miklum
vonbrigðum. Já eftir alllt þetta væl þá bjóst ég við betri bjór.
Þetta er engu að síður fínn bjór af Tuborg að vera.
Nánar |
|
--------------------------------------------------------------------------------------------------------------- |
Nýr bjór frá Ceres!
Þeir eru duglegir hjá Ceres að koma með
nýjungar. Í fyrra var það
Ceres Weiss
og árið þar áður
Ceres Royal Red. Að þessu sinni er það
Ceres Royal
Brown Ale sem bruggaður er í anda ensks brúnöl. Þetta er ansi vel
lukkaður bjór, mildur en þó bragðmikill og hressandi. Samt sem áður góð "dönsk"
útgáfa af þessum stíl og óhætt er að mæla með honum. |
|
--------------------------------------------------------------------------------------------------------------- |
Hræðilegar
fréttir!
Þær sorgarfréttir berast nú frá RisRas að
þar fæst ekki lengur besti kranabjór veraldar, St Feuillien. Já RisRas
menn gefa enga skýringu á þessu, segja þetta hafa með innflytjandan að gera.
Þetta er hræðileg ástand. Bjórbókin mun fara á stúfana og leita að stað
sem hefur þennan bjór á krana...það verður að takast því að öðrum kosti verður
ólíft í bæ þessum. |
|
--------------------------------------------------------------------------------------------------------------- |
Kiddi í Gull!
Þann 23.3.2007 fór harðasti angi Kidda á
Øl Molevitten og kláraði hið mikilvæga verkefni sem Kiddi
hóf í september 2006. Við vorum 5 Kiddar og 17 bjórar sem þurfti að klára.
Þetta hafðist nokkuð léttilega og því gull platta að vænta innan þriggja vikna
eða svo. Já Kiddi er kominn á spjöld sögunnar.
Nánar |
|
--------------------------------------------------------------------------------------------------------------- |
Westmalle
á góðum prís. Ég vildi
benda mönnum á að í gær 22.3.07 rakst ég á
Westmalle
í Magasin á fínu verði. Þar er nú hægt að fá tvær 33 cl flöskur á 36 kr og
maður velur hvort maður vill
Westmalle
Dubbel,
Westmalle
Tripel eða blanda þeim saman. Westmalle er annars með betri bjórum
og er alvöru munkabjór eða s.s. Trapist. |
|
--------------------------------------------------------------------------------------------------------------- |
Gullplattinn
senn í höfn. Á morgun
23.3.07 munum við loksins klára það sem við hófum fyrir þó nokkru síðan.
Jamms við munum mæta á
Øl Molevitten
og sulla í okkur þessa 17 bjóra sem eftir eru. Þegar því er lokið erum við
komnir með 100 mismunandi bjóra sem þýðir gull platti á vegg. Nánari
upplýsingar koma innan tíðar! |
|
--------------------------------------------------------------------------------------------------------------- |
100
bjórar á
Øl Molevitten
er enn takmark okkar í Kidda. Fyrirhuguð er ferð á
þennan ágæta stað til að klára þá 17 bjóra sem eftir eru. Staður
er ákveðinn en stund er vandamálið. Vonandi verður þetta gert
innan tíðar svo við fáum gull platta á vegg. |
|
--------------------------------------------------------------------------------------------------------------- |
Nørrebro
Påske! Ég vil
endilega benda mönnum á að nú fara páskabjórarnir að detta inn í hillur
verslanna. Þar á meðal má finna þennan fína karl frá Nørrebro
Bryghus. Þetta er jafnframt nýr bjór á flösku frá þeim og
sæmir sér vel á meðal hinna fjögurra.
Nørrebro Påske Bock er bara ansi ljúfur karl sem sæmir sér
vel á páskaborðinu. |