web log free Kiddi Fréttir

Fréttasíða Kidda er, eins og segir sig kannski sjálft, eins konar uppslagstafla þar sem koma munu fram skilaboð um það sem þykir fréttnæmt hverju sinni.  T.d. fyrirhuguð smakkkvöld, nýr bjór á Íslandi (fyrir íslenska arm Kidda) eða bara góð tilboð á bjór í BILKA eða álíka. Gamlar fréttir!

nIcebrew 11.11.2008 - Það hefur líklega ekki farið framhjá neinum Kiddameðlim að Freysinn er farinn að brugga bjór.  Eld(brugg)húsið hefur fengið nafnið nIcebrew, nafn sem reyndar er að mestu komið frá honum Óla okkar.  Þegar hér er komið sögu eru tveir bjórar komnir á flöskur og jólabjór liggur í gerjun.  Fyrsti bjórinn verður svo tilbúinn til drykkju núna um helgina 14.11.08 veiii.  Svo er Óli líka að fara brugga...spennandi!

----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Besti bjór Íslands 11.11.2008 - Mér finnst tímabært að benda Kiddum á Íslandi á að rétt innan seilingar er besti bjór sem Íslendingar hafa nokkurntíman skapað...Móri frá Ölvisholti.  Þetta er afskaplega góður og bragðmikill bjór og í raun skilda allra meðlima bjórmenningarfélagsins að smakka þennan karl.