|
Þorra
Kaldi er einn af fjórum Þorrabjórum Íslands þegar þetta er
skrifað. Stíllinn verður að teljast einsdæmi í heiminum
þó svo að hann sé í raun tiltölulega nýr af nálinni.
Bjór þessi er bara nokkuð góður, hann er þó, líkt og aðrir
íslenskir Þorrabjórar ekki nein nýjung heldur bara góður
lager. Í nefi má finna milda tóna af malti og léttum
humlum sem klárlega eru af tékkneskum uppruna. Ögn
karamella lurir einnig með. Í munni er um ferskan karl
að ræða, lifandi og þægilegan. Mildur með fínt jafnvægi
malts og humla. Fyrir opnihugaða má finna létta
karamellutóna. Fylling er góð og eftirbragð notalegt.
Já bara nokkuð nettur og þægilegur lager sem mætti vera á
markaðnum allt árið um kring. Hann býður þannig ekki upp
á neitt sérstakt sem gæti átt við Þorrann. |