web log free Stinnings Kaldi
     

HEIM

  bjórdómar
fréttnæmt
  pistlar ofl
 
  fróðleikur
 
 
 

Stinnings Kaldi

stíll :

Öl

brugghús :

Bruggsmiðjan Áskógssandi

land :

Ísland

alkóhól :

4,6%

fyrst smakkað :

22.10.2010

smökkunarstaður :

Reykjavík

Þegar þetta er skrifað er um glænýjan bjór að ræða frá Bruggsmiðjunni og öl í þokkabót en þeir hafa hingað til aðeins bruggað lager af tékkneskum pilsner stíl.  Sem fyrr nota þeir hina einkennandi Saaz humla en að auki íslenska ætihvönn í bruggið.  Talað er um að ætihvönn innihaldi efni sem hjálpað geta við stinngingsvanda karlmanna og þaðan er nafnið komið.  Bjórinn er fallegur í glasi með látlausa froðu, tær og glæsilegur.  Í nefi má hinna klassíska Saaz humla, ögn malt og svo blómlegan keim, ekki lakkrís eins og kannski mætti búast við frá hvönninni. Á tungu má finna talsvert malt en bitrir hreinir saaz humlarnir tvinnast vel saman við.  Fín fylling, gott maltað eftirbragð.  Dálítið sætt bragð sem skín í geng sem gæti verið hvönnin?  Annars mjög skemmtilegur bjór sem vert er að prófa.

 


Gefðu þessum bjór einkunn hér!