|
Síðast smakkaði ég
Páska Kalda 2008,
hann var svo sem ekkert spes en samt fínn lager.
Í ár kemur bjórinn í mjög elegant umbúðum og manni
langar virkilega að bjórinn sé góður. Hann er
fallegur í glasi, rafgullinn og nettur með létta
fína froðu. Þegar maður rekur nefið ofan í
hann finnur maður fyrir humlum og svo eitthvað sem
gæti minnt á púðursykur. Í munni er þetta
léttur, mildur og þægilegur lager með dálítinn
ristaðan maltkeim. Þægileg beiskja og
meðalfylling. Það er svo eftirbragðið sem
toppar þetta allt, mjög notalegt og gott með snerti
af ristuðu malti og karamellu. Já
bara hinn fínasti bjór hjá þeim Bruggsmiðjumönnum og
gef ég honum 3 og hálfa krús. Hálfa krúsin fær
bjórinn einvörðungu fyrir eftirbragðið sem er afar
þægilegt.
|