web log free Kaffeporter
     

HEIM

  bjórdómar
fréttnæmt
  pistlar ofl
 
  fróðleikur
 
 
 

Ølfabrikkens Kaffeporter

stíll :

Porter

brugghús :

Ølfabrikken

land :

Danmörk

alkóhól :

5.5 %

fyrst smakkað :

30.04.2006

smökkunarstaður :

Árósar

Ølfabrikken er eitt af mörgum mikróbrugghúsum Danmerkur og ku víst brugga ágætis bjór.  Ég er hins vegar ekki mikið fyrir danskan sérbjór en þar sem ég er mikill áhugamaður um kaffi þá ákvað ég að prófa þennan kaffi porter.  Í nefi er um að ræða sætan, maltaðan keim og soðnar sveskjur (sætur keimur).  Lítið sem ekkert kaffi í nefi.  Á bragðið er hann "brúnn" eins og ég segi stundum þegar ég get ekki alveg líst bragðinu af porter eða stát en segja má að það sé  sætt, maltað og  dökkt súkkulaði með kaffikeim.  Gosríkur með mikla fyllingu.  Eftirbragðið er ansi ljúft og þægilegt.  Fannst samt vanta pínu meira kaffi þar sem um kaffiporter er að ræða sem bruggaður er með gæða kaffi frá Sumötru.  Samt sem áður ágætis karl og ekki með þetta typiska danska bragð!