|
Gleðilegan bjór! Nú styttist í jólin víðast hvar á jarðkringlunni með öllu tilheyrandi. Það þýðir að öll helstu brugghús veraldar keppast við að koma jólabjórnum/vetrarbjórnum sínum til byggða. Hillur verslananna fyllast því af þessum hátíðarveigum og auðvelt er að tapa áttum. Hverja á maður að kaupa af þessum jólaköllum, hvaða bjór er bestur og hver er verstur? Til að auðvelda mönnum valið eitthvað þá hef ég tekið saman umfjöllun um nokkra af þessum bjórum sem koma á markað í danmörku (amk í Árósum) og menn geta notað það svona til viðmiðunnar við innkaup sín. Því miður fæst lítið af þessum bjór heima á Íslandi en þar er samt hægt að kaupa einn eða tvo. Vona að þetta gagnist einhverjum...gleðilegan bjór!
|
|
|
|
Aass Juleøl
er bjór frá fændum okkar Norðmönnum og þetta er jafnframt minn
fyrsti norski bjór. Aass brygghúsið hefur bruggað bjór síðan
1834 og jólabjór þeirra hefur endurtekið verið tiltaður besti norski
jólabjórinn. Í nefi má finna sætt rúgbrauð og heslihnetur og í munni
er hann mildur og ljúfur með mildum humlum og sæta ristaða malttóna.
Pínu kryddaður með dálítinn bock fíling. Þægilegur, sætur
malteftirkeimur. 3.5 krúsir |
|
|
Avery Old Jubilation Ale. Þetta er fyrsti ameríski vetrarbjórinn minn og eftirvæntingarnar voru miklar. Var ekki alveg sáttur við þennan bjór. Þetta er dökkur bjór með metta froðu sem endist ágætlega. Í nefi einhver maltkeimur, dálítið reyktur og hnetur. Lofar svo sem góðu en í bragði er ekki neitt sérstakt að gerast, minnir meira á hefðbundinn porter bara með talsverðum brenndum karakter sem líkast til má tileinka ristuðu maltinu 2.5 krúsir |
|
|
Bergquell Porter + Punsch.
Framleiðendur segja að þetta sé bjór sem bæði er hægt að drekka
ískaldann eða sjóðandi heitann svona eins og glögg. Bjórinn er
samt ekkert vondur, og það eru bara þó nokkur jól í honum. Í
nefi má finna heilmikið af kirsuberjum og kanil. Í munni er
nokkur mýkt, og mikil sæta þar sem saman tvinnast kirsuber, kanill
og sætt malt. Útkoman er svo í raun heldur væminn drykkur sem
ekki hentar mínum laukum að minsta kosti. 3 krúsir |
|
|
Bons Vaeux de La Brasserie Dupont
- hér er á ferð rosalegur laukatryllir sem hefur allt sem til þarf
fyrir góð jól. Að vísu er erfitt að hafa uppá þessum bjór en
ef það tekst þá eru menn að njóta bjórs með miklu flóknu bragði sem
minnir pínu á
Duvel. Þetta er sterkur bjór og menn verða að vera komnir
heim eftir jólagjafakaupin áður en tappinn er poppaður af þessum.
5 krúsir og ekkert múður! |
|
|
Brøckhouse Premium Julebryg 2009 - Hér er á ferð léttur og mildur jólabjór frá þessu rómaða danska brugghúsi. Um er að ræða mjög fábrotinn bjór sem nánast er skömm að kalla jólabjór. Léttir humlar, lítil fylling, ögn súkkulaði með góðu móti , ristaður eða brenndur maltkeimur og í raun ekkert sem minnir á jól eða vetur. Gæti samt trúað að hann sé góður með villibráð. 2.5 krúsir |
|
|
Carslberg Christmas Ale - er mikið öl, þétt og fyrirferðamikið á tungu og óskaplega mjúkt og minnir á silkidúk sem breiðist yfir bragðlaukana. Lakkrís má finna í bragði auk þess sem léttir humlar og ögn sætt malt setja svip sinn á heildarmyndina. Þetta er ljúffengur danskur jólabjór sem óhætt er að mæla með. 4 krúsir |
|
|
Chouffe N'ice - er belgískur jólabjór fyrir þá sem vilja fá eitthvað fyrir sinn snúð. Í flöskunni má finna 10% vínanda sem setur sinn svip á heildar bragð bjórsins. Fyrir mitt leiti er vínandinn aðeins og áberandi í þessum kalli en auk hans má finna öfluga humla sem gerir bjórinn bitran og ferskan. Stór kall fyrir stóra kalla. - 3.5 krúsir. |
|
|
Delirium Christmas - Það er orðið allt of langt síðan maður smakkaði þennan. Þetta er vel berjað og mikið belgískt öl, gosríkt fullskrokka kvikindi með stuttu en ljúfu eftirbragði sem minnir ögn á kaffi. Malt og frútt (sveskjur og kirsuber) í fínu jafnvægi þannig að bjórinn er ekki væminn. Þetta er fínn jólagaur sem óhætt er að mæla með. 3.5 krúsir. |
|
|
Erdinger Schneweisse - er jólabjórinn frá Erdinger. Bjórinn er í anda hinna þýsku hveitibjóra og hefur í raun ekkert jólalegt upp á að bjóða nema kannski örlitla aukningu í alkóhóli miðað við hina Erdinger kallana. Þetta er annars fínn bjór en enginn jólabjór. 3 krúsir |
|
|
Enghien Noél - Hér er á ferð góður tripel með smá jólaívafi. Bjórinn lítur vel út í glasi með hnausþykkan langvarandi froðutopp. Á tungu er hann ögn þurr en hressandi með spriklandi gosi og með því. Svipar töluvert til Westmalle Tripel sem kemur ekki á óvart þar sem hér er jú um ósvikinn tripel að ræða. Þetta er góður biti sem ég get gefið heilar 4.5 krúsir án þess að sjá eftir því. |
|
|
Flying Dog K9 Cruiser Wintare Ale - Hér er dæmi um gríðarlega vel lukkaðan amerískan vetrarbjór. Já og frá einu magnaðasta örbrugghúsi Bandaríkjanna Flying Dog. Þessi hefur hita, fyllingur, kraftinn og stemninguna. Úr glasi stíga karamella, malt og þurrkaðir ávextir. Þéttur bjór með mikla fyllingu. Það er létt beiskja í honum og vel tónað malt með þægilegum karamellu eftirkeim 4 krúsir. |
|
|
GB Jingle Ale - Bjórinn er bruggaður með enskt sterköl sem fyrirmynd. Samkvæmt miðanum á flöskunni er þetta öl kryddað með hunangi, múskati og kanil. Þetta passar allt saman því um er að ræða vel kryddaðan bjór með kanil, negul og öðru spennandi. Skemmtilegur jólabjór með gríðarlegum jólablæ. 3.5 krúsir |
|
|
Gouden Carolus Christmas - er belgískt jólaöl í sterkari kantinum hvað alkóhól varðar (10.5%) en í munni er þetta frekar létt öl en þó mjög bragðmikið , kryddað og með áberandi lakkrískeim. Alkóhólið kemur ekki svo áberandi fram í bragði en annað má segja um líkama og sál. Vilji maður ilja sér með sterkum góðum jólabjór þá er það þessi. 4 krúsir |
|
|
Greenland Julebryg - Þetta litla nýja brugghús á Grænlandi bruggar afar sérstakan bjór fyrir þær sakir að vatnið í hann er unnið úr Grænlandsísnum sem er jú yfir 2000 ára gamall. Bjórinn er sætur í nefi með einhvern ávöxt, sennilega eitthvað sem minnir á banana en einnig vottar fyrir negul sem er jú voða jólalegt ekki satt? Þetta er léttur og skemmtilegur jólabjór en þó ekkert svakalega spes. 3.5 krúsir |
|
|
Grolsch Herfst Bok - hér er sko jólabjór sem kemur svakalega á óvart. Hver hefði trúað því að Grolsch gæti bruggað góðan jólabjór? Þetta er bara með betri bjórum sem ég hef smakkað verð ég að segja. Hann ilmar frekar látlaust með léttum humlum en á tungu verður allt vitlaust. Bragðið er öflugt og kitlandi gosið eykur ánægjuna. Þetta er mjög sætur bjór en þó með afar stingandi humlum og ögn alkóhóli í restina. Eignlega mætti segja að hér séu sætir humlar á ferð (sem er í raun afar skrítið) með smá karamellu? Ég verð að gefa þessum jólabok heilar 4.5 krúsir |
|
|
Jefferson Julle Bryg - Hér er dálítið undarlegur bjór á ferð. Bjórinn kemur frá Jefferson brewery sem er undir stjórn Ørbæk bryghus sem gerir oftast ágætis bjór. Þessi bjór hér er hins vegar pínu undarlegur og minnir mig helst á skrítna blöndu hveitibjórs, belgísks blonds og kriek (kirsuberjabjór). Kann ekki alveg við þessa samansetningu. Annars er um mildan bjór að ræða með snefil af negul sem gefur smá jólakeim. 3 krúsir |
|
|
Kongens Bryghus Julemumme - Kongens Bryghus er ljómandi brugghús í Kaupmannahöfn. Þeir gera mjög skemmtilega bjóra og jólabjórinn þeirra er engin undantekning. Julemumme sker sig dálítið út úr jólabjóraflórunni og er dálítið einstakur. Fullt af jólakryddi og jólagleði. Mjög skemmtilegur jólabjór í léttari kantinum sem ætti að ganga vel í flesta forvitna bjóráhugamenn sem ekki bara eru að leita að þungaviktarbjór .4 krúsir |
|
|
La Binchoise Speciale Noel - Hér er á ferð sannur jólatryllir af belgísku bergi brotinn, hneturbrúnn í glasi með þykka fallega froðu sem varir lengi. Svakalegur í nefi með miklum sætum ávaxtarkeim og blómum og sömu sögu má segja um munn. Mikill karakter og fullt af gómsætum jólagjöfum fyrir bragðlaukana. Þægelaga "yfirvegaður" með ljúfu malti og ögn humalkeim og biturleika sem þó er stillt í hóf. 5 krúsir |
|
|
La Choulette De Noél - er franskur bjór af sérstökum bjórstíl sem kallast biére de garde. Þessi bjór er einkennandi fyrir sinn stíl, jurtaður og léttur en því miður eru ekki mikil jól í honum. Fínn bjór sem ég mæli samt ekki með sem jólabjór þar sem mun betri kallar eru til í þeim geiranum. 3 krúsir |
|
|
Mikkeller Santas Little Helper 2007 - Hið frábæra litla danska örbrugghús kemur hér með jólin í flösku. Þessi stórskemmtilegi bjór hefur allt til að gera góðan dag enn betri eða ljúft kvöld enn huggulegra, ja eða rauð jól hvít! Bragðmikill og stór bjór með mikinn karakter og töluverða sætu en langt frá því að vera væminn. Mjög sérstakur og sker sig úr. 4.5 krúsir |
|
|
Nils Oscar Julöl 2007 - Þessi karl kemur frá litlu sænsku örbrugghúsi Nils Oscar.Þetta er svartur bjór með þunna eða enga froðu og í raun pínu óaðlaðandi í glasi. Nefið lokkar heldur ekki því þar má finna þungan reyktan keim.Á bragðið er hann líka mjög spes en þó töluvert jólalegur með reyktum keim og brenndum hnetum, kannski kastaníuhnetur og svo brennt malt. 3.5 krúsir |
|
|
Nøgne Ø Underlig Jul -Ummm hér getur maður óhætt talað um jólabjór já sko sannarlega því upp úr dimm dimm rauðum bjórnum stígur heil skrúðganga af jólatónum í formi neguls og kanils og þurkaðra ávaxta. Já þrælfínn jólabjór frá spennandi litlu örbrugghúsi í Noregi sem m.a. gerir einn besta Stout veraldar skv Ratebeer. 4.5 krúsir |
|
|
Nørrebros Julebryg -Nørrebro Bryghus er líklega það brugghús sem hefur komið mér hvað mest á óvart í gegnum tíðina. Sérstaklega fyrir þær sakir að hingað til hefur danskt öl ekkert sérstaklega höfðað til mín. Jólabjór þeirra er með betri bjórum sem ég hef smakkað og án efa besti jólabjór Danmerkur og mæli ég eindregið með því að menn leggji sér leið í Salling eða álíka og kaupi prófi sjálfir. 4.5 krúsir |
|
|
'Batemans Roesy Nosey - er fallega rósrauður eins og jólabjór sæmir með netta froðu sem þó hverfur snöggt. Mildur í nefi með sætum ávaxtakeim jafnvel rúsínur? Á tungu er Rosey Nosey mildur en bragðmikill, ögn hnetaður (nutty) og með brakandi humlum sem þó halda sig á mottunni en gefa þægilega beiskju. Sætt malt kemur inn í góðu jafnvægi við humla. Mjög góð fylling og afskaplega gott og þægilegt eftirbragð. 4 krúsir |
|
|
Pére Noel - Ég rakst á þennan karl sem mér finnst ekkert voðalega aðlaðandi en viti menn innihaldið kom svona líka skemmtilega á óvart. Þetta er mattur ljósbrúnn bjór með ögn sætan mandarínukeim í nefi ummm. Gríðarlega gómsætur í munni og matmikill. Sætur og jafnframt beiskur með ögn sítrus og þó alls ekki súr, svo má finna brenndan sykur eða kandís og ljúffengt malt. Í heildina afar heilsteyptur bjór með allt sem til þarf fyrir góð jól. 4.5 krúsir |
|
|
Skovlyst Jule Bryg - Frábær jólabjór fyrir þá sem vilja jól en ekkert óviðráðanlegt monster. Hér er um þægilegan, bragmikinn en þó mildan jólabjór að ræða með meðalbeiskju og hæfilegan skammt af jólakryddum. Sætur, mjúkur og fullur. Hentar vel með ýmsum mat eins og kjötréttum hverskonar. Ég sé fyrir mér Krónhjört og Skovlyst Jule Bryg. 4 krúsir |
|
|
St Feuillien Cuvée de Noel - Ég veit í raun ekki hvar ég á að byrja...þetta er einfaldlega sá allra besti sem er á markaðnum í dag. Braðgmikill, alkóhólríkur, fullur í munn og ferskur. Ögn frúttaður og með áberandi sveskjum og þurrkuðum ávöxtum. Frábær bjór sem fæst á frábæru verði í Kvikly, Føtex, Superbest, Bilka og víðar. Vilji maður svo fá það allra besta þá er það af krana á t.d. RisRas. 5 krúsir |
|
|
Super Noél - er enn einn frá Belgíu. Nafnið gefur til kynna að um einhvern ofur bjór sé að ræða en ég held að það sé aðeins of ýkt. Þetta er fínn bjór og skilar miklu alkóhóli án þess að það komi allt of mikið fyrir í bragði. Vantar aðeins uppá bragð og fyllingu samt. Ágætt öl samt. 3.5 krúsir |
|
|
't Smisje Kerst - Er bara hinn fínasti bjór sem dálítið liggur sætu megin í lífinu en verður samt aldrei væminn. Þetta er 11% bjór sem tekur í en er þó langt frá því að vera of harður við bragðlauka. Maður finnur lítið fyrir áfengi í bragði. Malt, toffee, karamella, kaffi og púðursykur er nokkuð sem kemur í huga minn þegar ég renni þessum niður. Ég gef þessu fína öli 4 krúsir. |
|
|
Val-Dieu Biére de Noél - er enn einn belgíski jólabjórinn. Þetta er þægilegur bjór sem pakkar alveg hæfilegu alkóhólmagni. Ekkert of sterkur sem sagt.Í glasi er hann snotur og hnetubrúnn með hnausþykka og mjúka froðu sem minnir á nýfallinn jólasnjó! Í nefi er súrsætur gersveppur og einnig mysukeimur eða jafnvel mandarínur. Í munni er dálítið alkóhól svona í bakgrunni, gosríkur og gerjaður með sætum tón frá ristuðu malti. Smá sítrus líka. Ágætis fylling og fínt eftirbragð. 4 krúsir |
|
|
Winter Koninck - þessi bjór er seldur hér í DK sem eins konar jólabjór en í raun er að hægt að kaupa hann fram á sumar. Þetta er ágætt öl en þó vantar allt púður í hann. Þetta á að vera vetrarbjór sem þýðir að maður á að fá smá alkóhól til að ilja sér við en þessi er bara 6.5% sem er aðeins örlítið meira en hinn hefðbundni De koninck. Mér finnst vanta pínu uppá jólafílinginn í þessum bjór hins vegar er eftirbragðið í þessum svakalega ljúft og vel þess virði að smakka. 3.5 krúsir |
|
|
Young's Christmas Pudding Ale - er enskt jólaöl frá Young's. Þetta er afar sérstakur bjór með mikla fyllingu og mjúkur við tönn. Áberandi kókoskeimur í bland við þurrkaða ávexti gerir þennan bjór að algjörum sælkera. Frábær kósíbjór. 4.5 krúsir (Bjórklúbburinn Kiddi mælir með þessum bjór!) |
|
|
Young's Christmas Ale - er enskur bjór af gerðinni Bitter. Þetta er fallegur bjór í glasi með ágætis froðu. Í munni er hann þægilegur og liggur vel með fína fyllingu. Bragðgóður er hann með eindæmum með miklum spriklandi humlum og þægilegan biturleika. . 4.0 krúsir |
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Cuvée De Noel
eins og engill í glasi
-upp aftur-
Nú
fer að líða að jólum enn einu sinni sem þýðir að jólabjórar ef ýmsum
toga fara að streyma til byggða. Hér gætir ýmissa grasa allt frá
léttum sætum lager yfir í reykta þunga státa. Einn af þessum
jólaköllum er
St. Feuillien Cuvée De Noel sem ástæða er að tala um sérstaklega
þar sem hér er á ferð belgískt öl af bestu gerð. Af jólabjórum þá
er þessi bestur að mati bjórbókarinnar og í raun einn af bestu bjórum
veraldar og sest þar með á sömu hillu og
Duvel og fleiri. Ég hef áður metið þennan bjór og var þá
fyrst fyrir vonbrigðum enda eftirvæntingin allt of mikil. Í annað
sinn, nokkru síðar, vakti þetta öl mikla lukku og ég gaf því 4 krúsir.
Sá bjór var á flösku sem er ekkert nema gott mál en það ber að athuga að
þessi bjór er mun betri af krana. Kranabjórinn er guðdómlegur,
fullur af jólastöffi bæði í nefi og munni og minnir á engil í fljótandi
formi. Þegar maður hefur einu sinni fundið ilminn af Cuvée De
Noel þá er bara ekki eftur snúið maður getur ekki hætt. Kr
ana
útgáfan ef Cuvée fær
5 krúsir sem er fullt hús stiga
og á hann þá einkunn fyllilega skilið. Þetta er hreint út sagt
frábær bjór en hins vegar er ekki hlaupið að því að nálgast hann af
krana og því getur verið nauðsynlegt að grípa eina flösku eða tvær.
Þeir sem eru svo heppnir að vera staddir í Danmörku geta fengið þennan
jólabjór á krana á
Ris Ras og kostar hann
50 DKK, pínu dýrt en hverrar krónu virði. Flöskuútgáfuna má svo
finna víða t.d. á mjög góðu verði í Føtex og í
Kvikly en líklega einnig í Salling, Magasin ofl.