|
Mér
hefur enn ekki hlotnast sá heiður að smakka hinn venjulega
Jökul þegar þetta er skrifað. Það bíður betri tíma.
Þorra Jökull er bruggaður af einu af 4 örbrugghúsum Íslands.
Tilefnið er Þorramánuður og þá væntanlega Þorrablót.
Þetta er fallegur bjór sem kemur úr sérlega skemmtilegri
flösku. Í nefi er sætur þægilegur maltkeimur og
karamella. Hann er bragðmikill, með meðal fyllingu og léttur í kolsýru, mætti vera
mun meiri fyrir
minn smekk. Léttir humlar en þó nóg til að gera bjórinn
dálítið lifandi vantar þó eitthvað. Sopinn leggst ekki alveg
nægilega vel í munninn, það vantar einhvern stuðning? Sætt
léttristað malt er áberandi og skapar fínu fyllingu svo
er ögn karamella. Eftirbragð er stórgott og jafnvel besta
upplifunin við þennan karl. Já allt í allt fínn íslenskur bjór
og trúlega góður félagi súrmetis hverskonar. |