web log free Jökull
     

HEIM

  bjórdómar
fréttnæmt
  pistlar ofl
 
fróðleikur
 
 
 

Mjöður Jökull

stíll : Lager
brugghús : Mjöður Brugghús
land : Ísland
alkóhól : 5.0%
fyrst smakkað : 2.7.2009
smökkunarstaður : Árósar

Jökkul bjór er fyrsti bjór frá örbrugghúsinu Miði á Stykkishólmi.  Ég fagna alltaf góðu framtaki og þetta er vissulega gott framtak og skref í rétta átt í að bæta bjórmenningu Íslands.  Hins vegar fagna ég ekki bjórnum sem slíkum.  Hann er af gerðinni gylltur lager, ljós og gullinn og kristal tær og fallegur í glasi.  Í nefi má finna einhverja undarlega lykt, lopi og gras kemur upp í hugann.  Í munni er svo um mjög léttan bjór að ræða með engann skrokk, ekkert eftirbragð og frekar lítið bragð, hann er eiginlega flatur og leiðinlegur að mínu mati.  Já ég er að vona að flaskan sem ég fékk hingað út hafi verið skemmd því það er í raun langt síðan ég smakkaði svona óskemmtilegan bjór.  Það vantar biturleika, mýkt, skrokk og kolsýru.  Hins vegar er ágætt að hafa í huga að um frumburð brugghússins er að ræða, t.d. er Skriðjökull frá Miði betri bjór og Þorrabjórinn þeirra er mjög fínn.  Þetta er allt í rétta átt.

     


Gefðu þessum bjór einkunn hér!