web log free Jacobsen Forårsbryg
     

HEIM

  bjórdómar
fréttnæmt
  pistlar ofl
 
  fróðleikur
 
 
 

Jacobsen Forårsbryg

stíll :

Danskur Páskabjór

brugghús :

Husbryggeriet Jacobsen (Carlsberg)

land :

Danmörk

alkóhól :

6.3 %

fyrst smakkað :

16.03.2009

smökkunarstaður :

Árósar

Ég var að átta mig á því að ég hef enn ekki skrifað neitt um Jacobsen bjórinn þó ég hafi nú smakkað þá flesta.  Jacobsen er brugghús sem tilheyrir Carlsberg og einbeitir sér að bruggun eðalöls hvers konar.  Skoðið heimasíðu þeirra hún er gríðarlega smekkleg.  En að bjórnum, þessi frábæri páskabjór þeirra er nýjung á markaðnum.  Þetta er fallegur bjór í glasi, með sætan maltkeim í nefi ásamt möndlum og karamellu.  Í munni er meðalfylling, vel samsett bragð og spriklandi hressleiki.  Humlar eru látlausir en þó til staðar. Þægilegt léttristað maltið gefur karamellukeim, möndlur og marsípan.  Eftirbragð er mjög ljúft með léttri beiskju ásamt smá kókos í blárestina.  Já heilsteyptur og vandaður bjór sem smellpassar með lambinu