Hvað er að gerjast?
Bjór
12: Imperial Stout
Nafn: Russian Roullette Imperial Chocolate Stout
Malt notað: Cara Munich I (100 EBC - 38L), Carafa I, Special B
Malt, Roasted Barley, og dökkt maltekstrat (þurrt)
Humlar notaðir: Northern Brewing, Pacific Gem og Chinook
Annað: 5g klar urt til að fella út prótein , 50g muldar kakóbaunir
í seinni gerjun, 1 löng vanillustöng í seinni gerjun, 20 g kaffibaunir frá
kaffitár og loks skvetta af Havana Club Rom til að drepa það helsta í þessum
hráefnum.
Gerjun: eitt þrep í ca 14 daga og svo annað í 14 daga
Bruggun hófst: 26.7.09
Átöppun á flöskur: 20.8.2009
Tilbúinn: ca 20.10.2009
Magn: 8 L
Alkóhól: vonandi um 6.6%
IBU: 56.9
Nákvæm uppskrift hér
Einkunn:
Vandamál - Bjórinn átti að verða um 9% en er
talsvert veikari eða um 6.6% Bragðið er hins vegar mjög ljúffengt.
-------00--------
Bjór 11: Þýskur
hveitibjór
Nafn: Beer Belly's BBQ Beer (5XB)
Malt notað: Cara Munich I (100 EBC - 38L), ljóst hveitimalt ekstrakt (þurrt), Cara
Pils og Cara Hell (10 L)
Humlar notaðir: Northern Brewing, US Perle, Pacific Gem og
Hallertauer Hersbrucker.
Ger: Þýskt vökvager (Weihenstephan
Weizen)
Annað: 5g klar urt til að fella út prótein , 100g þurrkaður Yllir
og 15 mulin kórianderfræ
Gerjun: eitt þrep í ca 14 daga og svo annað í 14 daga
Bruggun hófst: 26.5.09
Átöppun á flöskur: 20.6.2009
Tilbúinn: ca 5.7.2009
Magn: 9 L
Alkóhól: vonandi um 6.5%
IBU: 28.9
Nákvæm uppskrift hér
Einkunn:
Vandamál - Ætlaði að hafa hann ljósan eða
"hvítann" en þessi skammtur af Cara Munich I gerði hann koparlitaðan. Það
er svo sem ekkert verra þannig séð.
-------00--------
Bjór 10: Indian Pale Ale
Nafn: Icelandic Poverty Aid (I.P.A) The Next Step -
batch 2
Malt notað: Cara Crystal (120 EBC - 45 L), ljóst malt ekstrakt (þurrt)
og Cara Amber (60 EBC - 16 L)
Humlar notaðir: Cascade, Simcoe, Chinook og Amarillo (dryhopping)
Ger: Amerískt vökvager
Annað: 5g klar urt til að fella út prótein
Gerjun: eitt þrep í ca 14 daga og svo annað í 14 daga með
Amarillo þurrhumlun
Bruggun hófst: 26.4.09
Átöppun á flöskur: 22.5.2009
Tilbúinn: 6.6.2009
Magn: 8 L
Alkóhól: vonandi um 6.5%
IBU: 62
Nákvæm uppskrift hér
Einkunn: 4
Vandamál - Smá vesen með humlana, þeir eru
farnir að tapa gæðum hjá mér. Vona að það komi ekki að sök. ATH notaði ger
sem hefur staðið í mánuð inní ískáp í gerstarter. Er pínu hræddur um að
þessi verði of bitur..sjáum til bara. Hmm er að smakka þennan núna
4.6.2009 sem er kannski of snemmt. Mér finnst hann ekki alveg eins lofandi
og batch 1. Hmm skrítið, ekki eins mikil froða eða gos, hann er þó mjög góður og
svakalega ljúft eftirbragð. Þarf að láta hann eldast betur held ég.
-------00--------
Bjór 9: Indian Pale Ale
Nafn: Icelandic Poverty Aid (I.P.A) The Next Step
Malt notað: Cara Crystal (120 EBC - 45 L), ljóst malt ekstrakt (þurrt)
og Cara Amber (60 EBC - 16 L)
Humlar notaðir: Cascade, Simcoe, Chinook og Amarillo (dryhopping)
Ger: Amerískt vökvager
Annað: 5g klar urt til að fella út prótein
Gerjun: eitt þrep í ca 14 daga og svo annað í 14 daga með
Amarillo þurrhumlun
Bruggun hófst: 14.4.09
Átöppun á flöskur: 10.5.2009
Tilbúinn: 24.5.2009
Magn: 6 L
Alkóhól: 5.4%
IBU: 57
Nákvæm uppskrift hér
Einkunn: 4.5 - Snilld, besti bjórinn minn til þessa, klárlega.
Vandamál - Hefði viljað ná honum upp í meira
áfengi en þetta verður bara að duga. Svo er eitthvað voðalega lítið að
skila sér úr þessu bruggi? F´bara rétt rúma 5L???
-------00--------
Bjór 8: Amerískur Amber Ale
Nafn: Simple nIce Brown Ale
Malt notað: Cara Red (40EBC - ca 15 L), Cara Amber (60 EBC - 16 L), Cara Crystal
(120 EBC - 45 L) og Light dry malt ekstrakt
Humlar notaðir: Hallertauer Hershbrucker, US Perle, Northern
Brewer og Chinook
Annað : 5g klar urt til að fella út prótein og Stjörnuanis
Ger: Kolsch vökvager
Gerjun: eitt þrep í 2 vikur og svo annað þrep í ca 2 vikur.
Bruggun hófst: 25.3.09
Átöppun á flöskur: 21.4.09
Tilbúinn: ca 7.5.09
Magn: 8.0L
Alkóhól: 4.0%
IBU: ca 29.7
Nákvæm uppskrift hér
Einkunn:
Vandamál - vesen með blowout en það
reddaðist. Smakkaði bjórinn 4 mánuðum eftir að hann var settur á flösku og
viti menn bjórinn bragðast nú eins og brown ale. :)
Dularfullt...held ég breyti nafninu Simple nIce Brown Ale!
-------00--------
Bjór 7: Danskur páskabjór (Maibock)
Nafn: Easter Bunny's Memorial Brew
Malt notað: Cara Red (40EBC - ca 15 L) , Cara Munich I (100 EBC -
38L) og Light dry malt ekstrakt
Humlar notaðir: Hallertauer Hershbrucker og US Perle
Annað : 5g klar urt til að fella út prótein
Ger: Kolsch vökvager
Gerjun: eitt þrep í 2 vikur svo 3 vikur á flöskum
Bruggun hófst: 21.3.09
Átöppun á flöskur: 4.4.2009
Tilbúinn: ca26.3.2009
Magn: 8.0L
Alkóhól: 5.5%
IBU: ca 36
Nákvæm uppskrift hér
Einkunn: 4 krúsir
Vandamál - Ekki náðist áætlað áfengismagn
sem var 6.2% en það verður vonandi í lagi. Bjórinn verður þá líklega ögn
sætari fyrir vikið. Hefði kannski verið betra að nota tveggja þrepa
gerjun. Gríðarlegt botnfall!
-------00--------
Bjór 6: Fjölþjóða furðubjór (ale)
Nafn: Three Headed Monster Ale
Malt notað: Cara Amber (60 EBC - 16 L), Cara Red (40EBC - ca 15 L) og Light dry malt ekstrakt
Humlar notaðir: German Northern Brewers og Nýsjálenskur Pacific
Gem
Annað : 5g klar urt til að fella út prótein og Stjörnuanis
Ger: Amerískt vökvager
Gerjun: tvö þrep, fyrst 2 vikur svo 2 vikur og loks
ca mánuður á flöskum
Bruggun hófst: 24.1.09
Átöppun á flöskur: 18.2.2009
Tilbúinn: 18.3.2009
Magn: 7.5L
Alkóhól: 6.2 %
IBU: 66.2
Nákvæm uppskrift hér
Einkunn: 3.5 krúsir
Vandamál - ath smakkaði síðustu flöskuna
16.5.2009 og ég verð að segja bjórinn var mun betri núna en þegar ég drakk mest
allt af honum. Þetta þýðir að ég þarf að láta bjórinn eldast mun lengur
næst á flösku. Nú eru t.d. liðnir 3 mánuðir síðan hann fór á flösku.
Salgæti.
-------00--------
Bjór 5: Belgískur Tripel (munkabjór)
Nafn: Monks Dirty Little Secret
Malt notað: Cara Amber (60 EBC - 16 L), Cara Munich Type I (100 EBC
- 38L), Dark malt ekstrakt og Wheat
malt ekstrakt (þurrt)
Humlar notaðir: German Northern Brewers og Hallertauer
Hershbrucker
Annað : Púðursykur, 5g klar urt til að fella út prótein
Ger: Belgískt þurrger
Gerjun: tvö þrep, fyrst 2 vikur svo 2 vikur og loks
ca mánuður á flöskum
Bruggun hófst: 2.1.09
Átöppun á flöskur: 30.1.09
Tilbúinn: ca 28.2.2009
Magn: 7.5L
Alkóhól: 7.1%
IBU: 36.8
Nákvæm uppskrift hér
Einkunn: 3.5 krúsir
Vandamál - Fór í hátt OG (Original
Gravity - 1080) sem annað hvort gefur mjög hátt áfengismagn í lokin eða mikla og
góða fyllingu. Það má líka finna snefil af plastbragði sem stafar líklega
af þurrgerinu? ATH ég smakkaði síðustu
flöskuna 16.5.2009 og ég verð að segja bjórinn var mun betri núna en þegar ég
drakk mest allt af honum. Þetta þýðir að ég þarf að láta bjórinn eldast
mun lengur næst á flösku. Nú eru t.d. liðnir 4 mánuðir síðan hann fór á
flösku. Snilld!
-------00--------
Bjór 4: Indian Pale Ale
Nafn: Icelandic Poverty Aid (I.P.A) - batch 2
Malt notað: Cara Crystal (120 EBC - 45 L), Cara Pils og malt ekstrakt (þurrt)
Humlar notaðir: Cascade, Amarillo og Chinook
Ger: Amerískt þurrger
Annað: 5g klar urt til að fella út prótein
Gerjun: eitt þrep í ca 18 daga
Bruggun hófst: 17.12.08
Átöppun á flöskur: 4.1.2009
Tilbúinn: 24.1.09
Magn: 8 L
Alkóhól: 5.4%
IBU: 45 - 50
Einkunn: 4
Vandamál - Það örlar á dálitlu plastbragði í
nefi og bragði. Líklega komið frá þurrgerinu
-------00--------
Bjór 3:
Jólabjór - ale
Nafn: The 14th Santaclaus
Malt notað: Cara Amber, Special B og medium malt ekstrakt (þurrt)
Humlar notaðir: Chinook og Cascade
Ger: Amerískt Safal 05 þurrger
Gerjun: tvö þrep, fyrst 10 dagar svo 16 dagar
Annað: Mandarínur, kanilstangir, negull, greninálar, allrahanda
krydd og púðursykur og síðast en ekki síst, jólastemning.
5g klar urt til að fella út prótein
Bruggun hófst: 6.11.08
Átöppun á flöskur: 2.12.08
Tilbúinn: ekki vitað hvenær
Magn: 7.5L
Alkóhól: 7.2%
IBU: um 70
Einkunn: 1
Vandamál - Eitthvað plastbragð loðir enn við
bjórinn og hann er allt of kryddaður. Negullinn er allt of yfirgnæfandi og
svo er eitthvað "off" bragð sem ég kann illa við.
-------00--------
Bjór 2:
Indian Pale Ale
Nafn: Icelandic Poverty Aid (I.P.A)
Malt notað: Cara Crystal (125 EBC - 45 L), Cara Pils og malt ekstrakt (þurrt)
Humlar notaðir: Cascade, Amarillo og Chinook
Ger: Amerískt þurrger
Gerjun: eitt þrep í 16 daga
Bruggun hófst: 23.10.08
Átöppun á flöskur: 8.11.08
Tilbúinn: ekki vitað hvenær - ca 28.11.08
Magn: 7.5L
Alkóhól: 5.7%
IBU: 45 - 50
Einkunn: 4
Vandamál - Það örlar á dálitlu plastbragði í
nefi og bragði. Líklega komið frá þurrgerinu
-------00--------
Bjór 1:
Indian Pale Ale
Nafn: First Icelandic Crisis Pale Ale
Malt notað: Cara Crystal (125 EBC - 45L) og malt ekstrakt (þurrt)
Humlar notaðir: Cascade í suðu og Amarillo þurrhumlun
Ger: Enskt þurrger
Gerjun:
eitt þrep í 15 daga
Bruggun hófst: 12.10.08
Átöppun á flöskur: 27.10.08
Tilbúinn: ekki vitað hvenær - ca 9.11.08
Magn: 7.5L
Alkóhól: 5.4%
IBU: 50
Einkunn: 3
Vandamál - Tveim vikum eftir að gerjun var
sett í gang var bjórinn enn að gerjast. Spurningin er hvað var að valda þessu? Gæti verið sýking? Gæti verið lélegt
ger, sem er lengi að borða eða kannski of lágt hitastig? Eftir að hafa smakkað
karlinn þá tel ég samt líklegast að það sé bara gerið sem er svona lengi að, því
bjórinn er mjög góður - í nefi er sætt malt, beiskir humlar og dásamleg
mandarínu/grape lykt. Í munni er góð fylling, létt kolsýra og þægileg beiskja og
þó nokkur IPA fílingur. Já þessi karl er á réttri leið.
EBC = ( Lovibond X 2.65) - 1.2
-------00--------