web log free Hoppin Frog Bodacious Black and Tan
     

HEIM

  bjórdómar
fréttnæmt
  pistlar ofl
 
  fróðleikur
 
 
 

Hoppin Frog Bodacious Black & Tan

stíll : IPA og Stout blanda
brugghús :  
land : Bandaríkin
alkóhól : 7.6 %
fyrst smakkað : 12.9.2008
smökkunarstaður : Árósar

Það er svo gaman að bandarískum microbjór, þeir voga sér nefnilega þarna fyrir vestan að blanda saman stílum og brjóta ýmsar reglur.  Hér er gott dæmi, blanda af IPA og stout (67% IPA og 33% stout), já þetta hef ég aldrei prófað áður.  Mjög spennandi verð ég að segja þar sem IPA er minn uppáhalds bjórstíll og stout er oft ansi ljúft öl þegar vel tekst til. Þetta er kolsvartur bjór með þykka brúna froðu.  Í nefi er súkkulaði, vanilla og krydd.  Munnur stout, súkkulaði, brennt léttreykt malt og ögn kaffi.  Mýkt og góð fylling, ögn biturleiki en lítill IPA fílingur, kemur þó inn um miðbik sopans, þ.e.a.s bragðið hefst með stout keim ósköp hefðbundnum en svo kemur IPA inn með beiskju og amarillohumlum sem þó eru dekkaðir af súkkulaði og maltinu.  Skemmtileg upplifun en engin undur og stórmerki.