web log free Hoegaarden
     

HEIM

  bjórdómar
fréttnæmt
  pistlar ofl
 
  fróðleikur
 
 
 

Hoegaarden Biére Blanche

stíll : Belgískur hveitibjór
brugghús : Brouwerij Hoegaarden (InBev)
land : Belgía
alkóhól : 5,0 %
fyrst smakkað : 09.09.2000
smökkunarstaður : Reykjavík

Hoegaarden er belgískur hveitibjór eins og hann gerist hvað bestur en nafnið er komið frá smábænum Hoegaarden sem áður var vagga hins hvíta bjórs í Belgíu.  Með tilkomu Hoegaarden bjórsins í kringum 1960 var þessi magnaði stíll endurfæddur en bruggun hvítbjórs hafði þá legið niðri í um áratug.  Hoegaarden ilmar afskaplega vel með miklum sítruskeim og kryddi eða kóriander.  Á tungu er hann bragðmikill en mildur með létta fyllingu.  Í munni má finna frúttaðan og í senn kryddaðan keim með ögn sítrónu og kóríander og svo nokkurn gersvepp. Banani gæti líka gengið?  Það á svo við um þennan sem og aðra hveitibjóra að hann er óskaplega svalandi og rennur hratt og létt niður.  Magnaður "session" bjór yfir sumarið.  ATH - fæst aftur í ÁTVR frá 1. ágúst 2005.