|
Þetta
er flaggskip Wychwood brugghússins sem glögglega má
sjá á heimasíðu brugghússins! Það fyrsta sem ég vil
benda á við þetta enska öl eru umbúðirnar. Flaskan
er hrein snilld, glær með upphleyptum krúsídúllum
þar sem brúnn mjöðurinn fær að njóta sín vel. Svo er
það miðinn sem er algjört listaverk, takið eftir
öllum smáatriðunum í bakgrunni. Allir bjórar frá
þessu brugghúsi bera þessi listaverk (sjá nánar
http://www.wychwood.co.uk/labels_etc.htm.) En nóg um
það, umbúðir eru óaðfinnanlegar en bjórinn sjálfur
er líka hinn ágætasti. Fallegur í glasi, ágæt froða.
Ríkuleg lykt með ferskum humlum og áberandi brennt
malt, rétt aðeins örlar á súkkulaði. Mikið og öflugt
bragð, nettir humlar og töluvert malt og svo kaffi í
restina. Fín fylling og langt eftirbragð. Frekar
þungur bjór sem kannski ekki er allra. |