|
Vá! Eitt orð sem í raun væri nóg
til að lýsa þessum bjór. Um er að ræða öflugan
Imperial India Pale Ale frá hinu stóra dásamlega bjórríki
Bandaríkjunum. Þetta er 10% skrattakollur.
Gríðarlega tær í glasi, létt froða. Hrúga af sætu
malti, humlum og frúttuðu geri í nefi. Ofsalega ljúfur
keimur. Í munni æðir sopinn um allt og fyllir
upp í öll hólf og gólf með afskaplega öflugum humlum
og tonn af malti og hnetum. Það lurir svo einnig
einhver sætur kannksi hunangskeimur innvafinn í beiska
humlana. Gríðarlega "þéttur" bjór með flókna og
skemmtilega samsetingu. 10% áfengis finnur maður
svo ekki nemað sem þægilegan hita í brjósti.
Þessi fíni karl verður að bætast í hóp uppáhalds
bjóranna mína |