web log free Gullfoss
     

HEIM

  bjórdómar
fréttnæmt
  pistlar ofl
 
  fróðleikur
 
 
 

Ölgerð Reykjavíkur Gullfoss

stíll :

Lager

brugghús :

Ölgerð Reykjavíkur

land :

Ísland

alkóhól :

5,0%

fyrst smakkað :

08.08.2008

smökkunarstaður :

Reykjavík

Á þessum fallega degi, 080808 sem er reyndar afmælisdagur minn þá smakka ég glænýjan íslenskan bjór, Gullfoss.  Gullfoss kom á markað í dag.  Brugghúsið, Ölgerð Reykjavíkur bruggar bjór sinn hjá Bruggsmiðjunni, þeim sömu og skapa Kalda og bruggmeistarinn er enginn annar en ölgúrúið hjá Nørrebro Bryghus, Anders Kissmeyer.  Bjór þessi er miðaður við íslenskan markað, þ.e.a.s honum er ætlað það hlutverk að vera skref í rétta átt svona á meðan Ölgerðin er að koma sér fyrir á markaðnum.  Þannig er þetta ekki flókinn bjór heldur mildur en þó hressandi lager. Í raun pínu vonbrygði persónulega en þó mjög vel lukkaður bjór.  Þetta er bjór fyrir Íslendinga, á því leikur enginn vafi.  Nettur, brakandi og gríðarlega hreinn á tungu.  Gosríkur og í góðu jafnvægi hvað varðar humla og malt og eftirbragð er langt og ljúft.