Þennan
kannast nú flestir við þó svo að ekki eins margir hafi smakkað
hann! Guinness er heimsfrægur írskur stát og tilheyrir
þurrari gerðinni. Hann er mjúkur eins og silki og
rjómakenndur og rennur niður með ljúfu sterku brenndu malti og
kaffikeim (gæti minnt á svissmokka?). Unaðslegt eftirbragð
með snefil af kaffi sem fjarar hægt út og varir lengi. Froðan
er svo fallega bage lituð, mjúk eins og bómull og þétt.
Varðveitis lengi og festist í glasinu. Já þetta er bara
hinn fínasti bjór. Það vill loða við þennan ágæta bjór
að menn sem ekki þekkja vel til telja allan dökkan/svartan
bjór bragðast eins og Guinness. Þetta eru hreinir
fordómar í þeim skilningi að menn eru að dæma án þess að vita.
Litur hefur ekkert með bragð bjórs að gera. T.d. eru
hinnir belgísku dubbel bjórar ekkert í líkingu við ensku og
írsku státana. Prófið sjálf muninn. |