|
Grottenbier sem ţýđir beinlínis hellabjór er
sköpunarverk hins ţrjóska bruggara Pierre Celis sem
er fađir hins belgíska hvítbjórs eins og hann er í
dag. Pierre er nefnilega
sá sem endurvakti
Hoegaarden bjórinn á sínum tíma. Grottenbier
er látinn ţroskast líkt og kampavín og í gríđar stórum
og köldum hellum ţar sem hitastig er fast í
kringum 12ş og raki
95%. Viđ ţessar ađstćđur ţarf geriđ ađ ađlgast ađ
nýju umhverfi og gefur ţví frá sér nýjar
samsetningar bragđefna. Í nefi, sćtur,
frúttađur međ ögn eplum og jafnvel smá lakkrís.
Í munni er hann ţćgilegur og notalegur međ frútti og
fíling. Léttur samt og ekkert gífurlega
brađsterkur međ međalfyllingu. Humlar koma vel inn á móti
maltinu og myndar hina fullkomnu heild.
Frekar mildur og ljúfur bjór sem allir ćttu ađ geta
notiđ án mikillar áreynslu. |