|
Grolsch
hinn hefðbundni hefur lengi verið einn þeim lager sem
ég kann ágætlega að meta. Grolsch Herfst Bok er hins
vegar Bok af bestu gerð og ég er í raunn enn að jafna mig
á þeirri undrun sem ég varð fyrir þegar ég smakkaði þennan
kall. Þetta er bara með betri bjórum sem ég hef smakkað
verð ég að segja. Hann ilmar frekar látlaust með léttum
humlum en á tungu verður allt vitlaust. Bragðið er
öflugt og kitlandi gosið ítir undir ánægjuna. Þetta er
mjög sætur bjór en þó með afar stingandi humlum og ögn
alkóhóli í restina. Eignlega mætti segja að hér séu
sætir humlar á ferð (sem er í raun afar skrítið) með smá
karamellu? . Bjórinn nær aldrei að verða væminn þökk sé
6.5 % sem læðast að manni í lok sopans og eftirbragðið er
einfaldlega himneskt ummmmmm. Þvílíkur sælkerabjór! |