|
Þetta
litla nýja brugghús á Grænlandi bruggar afar sérstakan bjór
fyrir þær sakir að vatnið í hann er unnið úr Grænlandsísnum
sem er jú yfir 2000 ára gamall. Hreinna vatn og
reyndar eldra fær maður varla í nokkrum öðrum bjór.
Jólaöl þeirra er bruggað úr 6 gerðum af malti og 2 gerðum
humla. Bjórinn er sætur í nefi með einhvern ávöxt,
sennilega eitthvað sem minnir á banana en einnig vottar
fyrir negul sem er jú voða jólalegt ekki satt? Í munni er
hann mildur, léttur en gefur góða fyllingu og mikla mýkt.
Nokkuð kryddaður með dökku súkkulaði og ristuðu malti.
Frekar flatur en þó ekkert óþægilegur en fyrir mitt leiti
mætti vera meira gos og jafnvel ögn meiri biturleiki. Allt í
allt ágætis bjór en ekkert sem maður eltist við á enda
veraldar ja eða allt norður til Grænlands fyrir þær sakir :) |