web log free Great Divide Yeti Imperial Stout
     

HEIM

  bjórdómar
fréttnæmt
  pistlar ofl
 
  fróðleikur
 
 
 

Great Divide Yeti Imperial Stout

stíll :

Imperial Stout

brugghús :

Great Divide Brewing Company

land :

Bandaríkin

alkóhól :

9.5 %

fyrst smakkað :

29.11.2011

smökkunarstaður :

Stocholm Svíþjóð
Yeti er líklega þekktasti bjór þeirra hjá Great Divide, eða amk einn sá vinsælasti. Hann er svo til í ýmsum útgáfum. Um er að ræða öflugan og ótrúlega notalegan bjór :)  Bjórinn er af gerðinni Imperial Stout (sterkur stout) og er kolsvartur sem nóttin í glasi með brúna froðu sem myndar ca 1 cm lag á svartri olíunni.  Í nefi er mikill keimur, sæta áberandi, súkkulaði, vanilla og líklega eitthvað sem minnir á píputóbakið hans afa.  Í munni er eins og lítil höggbylgja renni yfir laukana með fullt af ljúfum skemmtilegum tónum.  Það er lítil beiskja en vel merkjanleg og tosar létt í tunguna svo er fullt af sætu ljúfu malti og súkkulaði, kannski einhver vanilla þarna líka. Fyllingin er góð og eftirbragð dásamlegt. Eftir að hafa loksins smakkað þennan skil ég vel vinsældir bjórsins.  Yeti er einfaldlega eins og imperial stout gerist bestur.  Fullkominn!