|
Vetrarbjórinn
frá Great Divide. Magnað amerískt brugghús.
Þróttmiklir bjórar með karakter. Þessi kemur í
afar fallegum umbúðum, það er eitthvað við miðann sem
algjörlega heillar mig. Bjórinn sem er af
gerðinni enskur aldinöl (old ale) er ofsalega fallegur
í glasi dimmur með rauðum blæ og svo nettri froðu
ofaná. Í nefi er mikil sæta, vanilla og
súkkulaði og eitthvað sem minnir á hnetur? Umm í munni
er hann bragðmikill, gosríkur og flottur. Humlar taka
þægilega á móti manni hvílandi á notalegum maltgrunni
sem skapar dálitla sætu á móti. Finnst eins og jafnvel
einhver kókos í bakgrunni og ögn súkkulaði. Það er þó
ekki mikið sem minnir á jólin þannig séð þó vissulega
sé súkkulaði og hnetur jólalegt. Samt sem áður
ofsalega ljúfur bjór sem ég myndi kaupa helling af ef
ég kæmist í hann aftur. |