web log free Great Divide Belgian Style Yeti Imperial Stout
     

HEIM

  bjórdómar
fréttnćmt
  pistlar ofl
 
  fróđleikur
 
 
 

Great Divide Belgian Style Yeti

stíll :

Imperial Stout

brugghús :

Great Divide Brewing Company

land :

Bandaríkin

alkóhól :

9.5 %

fyrst smakkađ :

22.12.2011

smökkunarstađur :

Reykjavík
Ofsalega spennandi bjór frá frábćru bandarísku brugghúsi.  Hér má segja ađ komi saman blanda af amerískum imperial stout eđa Yeti sem er frábćr imperial stout og svo belgískum sterköl.  Ţegar hellt er í glasiđ sullast hann úr flösku eins og kolsvört olía beint úr jörđinni.  Myndar svo ca 1 cm brúnan frođuhaus sem varir ágćtlega.  Í nefi eru svo rosalegir hlutir ađ gerast, fullt af ţurrkuđum dökkum ávöxtum, lakkrís, dökkt súkkulađi, vanilla, ögn reykur og svo kókos.  Allt dansar ţetta fram og til baka og kolruglar mann algjörlega.  Dásamlegt.  Í munni er svo ofsalega ljúf fylling, fullt af gosi og slatti af humlum.  Ţó er sćtt yfirbragđ, fullt af ristuđu malti, lakkrís/anis, belgískt ger, rúgbrauđ og espresso sem mynda flókna og margslungna samsuđu.  Alkóhóliđ er algjörlega faliđ ummm.  Frábćr brćđingur frá frábćru brugghúsi.  Mun elta ţennan uppi ef tćkifćri gefst.