|
Þessi
bjór er í rauninni pínu vonbrigði, en þó ekki hvað
gæði varðar heldur frekar það að hér er bandarískur
gæðabjór sem braðast eins og belgískur. Hmm er
ég að bulla dálítið? Nei það sem ég á við er að
þessi bjór bragðast fullkomlega eins og alvöru
belgískur blond. Það er svo sem markmiðið með
þessum bjór en það er bara þannig hjá mér að vilji ég
belgískan bjór, þá kaupi ég belgískan bjór...ekki t.d.
bandarískan bjór bruggaðan að belgískri fyrirmynd.
Þeir fá samt lof fyrir gæði bjórsins, hið belgíska ger
er greinilega alveg að virka. Í nefi er ferskur
gerkeimur, sætur og ávaxtaður með svona "perfumy"
yfirbragð. Í munni er um mög ljúfan bjór að ræða
með mikinn kryddaðan og dálítið flókinn skrokk með
geri og ilmvatni. Já góður bjór en vantar þó
þetta sérstaka "bandaríska" yfirbragð. |