HEIM

  bjórdómar
fréttnæmt
  pistlar ofl
 
gamla bjórbók
 
 
 

Gouden Carolus Tripel

stíll : Belgískur Tripel
brugghús : Brouwerij Het Anker
land : Belgía
alkóhól : 9.0%
fyrst smakkað : 31.12.2009
smökkunarstaður : Reykjavík
Síðasti bjór ársins 2009 er þessi flotti Belgi í boði móður minnar.  Ég hef ekkert nema gott af þessu brugghúsi að segja og breytist það ekki hér með.  Í glasi er gríðarleg froða, silkimjúk og djúsí.  Í nefi liggur hann léttur og ferskur með ögn sítrus og mjúkum humlum og ylmvatni.  Í munni er um mjög bragðmikinn bjór að ræða, með talsvert mildara móti en búist var við.  Jú jú alvöru tripel það leynir sér ekki en hann er þó mildari en t.d. Westmalle Tripel og ekki eins þurr og súr.  Finna má milda létta humla í fullkomnu jafnvægi við maltið sem gerir í raun enn betur og gæðir bjórinn ögn sætum bak-og eftirkeim sem gefur mjög skemmtilegan sykurkeim á tungu og góm, jafnvel smá lakkrís í restina?  Mjög ljúfur bjór og án efa góður "byrjendatripel" ef svo má að orði komast! Góður einn og sér eða jafnvel með einhverjum sterkum fiskrétt...umm t.d. skötusel eða smálúðu!
  Þessi bjór er gjöf frá móður minni...kærar þakkir Sif!