|
Þessi bjór er í nefi kryddaður með
lakkrís, eplum og smá alkóhóli. Svakalega mögnuð lykt! Í munn
er hann frekar í léttari kantinum en samt með MASSA bragð sem
einkennist af lakkrís en er einnig frekar kryddað. Það er
líka hægt að segja að þetta fína öl búi yfir smá olíufíling,
sem má ekki taka sem slæman eiginleika. Eftirbragð er lítið
en gómurinn er eins og þakinn af ósköp notalegri dúnsæng.
Þetta öl er eitthvað sem getur töfrað fram hina fullkomnu
jólastemningu svona rétt fyrir svefninn á Þorláksmessu. Gæti
trúað að piparkökur eigi vel við þennan andskota. 10.5 % koma
manni svo vel inn í draumalandið! |