web log free Göttinger Edel Pils
     

HEIM

  bjórdómar
fréttnæmt
  pistlar ofl
 
  fróðleikur
 
 
 

Göttinger Edel Pils

stíll :

Þýskur Pilsener

brugghús :

Göttinger Brauhause

land :

Þýskaland

alkóhól :

4.8%

fyrst smakkað :

26.08.2005

smökkunarstaður :

Árósar

Göttinger er eðal pilsener bruggaður í hinum þýska bæ Göttingen þaðan sem nafn bjórsins er greinilega komið.  Eins og flestir þýskir bjórar þá er þessi bruggaður eftir hinum gömlu hreinsunarlögum (Reinheitsgebot). Í nefi má finna hefðbundinn lagerkeim, létt málmkenndan með humlum.  Geysilega snarpur pilsner með humlum sem rífa þægilega í tungu og kinnar.  Vottar fyrir hunangskeim í bland við dauft maltið.  Annars er hér á ferð ljúfengur pilsener að hætti Þjóðverja með fína fyllingu. Þægilegur pils sem vekur upp ljúfa matarlyst.  Fyrir þá sem kunna að meta pilsener þá er þetta bara ansi fínn karl en þeir sem vilja bara hinn hefðbundna lager þá gæti þessi verið of krefjandi verkefni.