|
Gose,
sem nú fæst einungis í bænum
Goslar og Leipzig í Þýskalandi, er ófiltreraður
yfirgerjaður bjór (öl), bruggaður úr 50 - 60% hveitimalti sem gerir
bjórinn ljósan, skýjaðan og afar ferskan. Stundum eru notaðir í hann hafrar og
ennfremur coriander og salt sem fyrr segir. Rétt eins og hinn forni belgíski
lambic, var gose látinn gerjast með
hjálp villigers úr andrúmsloftinu en í dag er líklega notast
við einangraða gerstofna.Þetta er gruggugur og mattur ljós
bjór með dálitla froðu. Í nefi eru léttir humlar, ögn
mysukeimur og grape auk krydds. Pínu frúttaður en ekki
áberandi. Í munni er hann léttur og mildur með létta
fyllingu og lítið gos en þó nóg. Bragð er erfitt að átta
sig á en það er þessi þýski hveitikeimur með ögn sítrus í
kinnum og svo jafnvel hnetur og snefil af humlum.
Svo er eitthvað aukabragð sem ég get ekki alveg áttað mig á,
jafnvel fúkkabrag eða tunnubragð sem gæti stafað af saltinu?
Eftirbragð er svo milt með humluðu yfirbragði. Í heild
sinni svalandi og ferskur hveitibjór. |